< 1 Korintubréf 15 >
1 Kæru vinir, nú vil ég minna ykkur á kjarna fagnaðarerindisins. Hann hefur ekki breyst – það er sami góði boðskapurinn sem ég flutti ykkur forðum. Þið tókuð við honum með fögnuði og gerið enn, því að trú ykkar er grundvölluð á þessum dásamlega boðskap.
ⲁ̅ϯⲧⲁⲙⲟ ⲇⲉ ⲙⲙⲱⲧⲛ ⲛⲁⲥⲛⲏⲩ ⲉⲡⲁⲉⲩⲁⲅⲅⲉⲗⲓⲟⲛ ⲡⲁⲓ ⲉⲛⲧⲁⲓⲉⲩⲁⲅⲅⲉⲗⲓⲍⲉ ⲙⲙⲟϥ ⲛⲏⲧⲛ ⲡⲁⲓ ⲟⲛ ⲉⲛⲧⲁⲧⲉⲧⲛϫⲓⲧϥ ⲡⲁⲓ ⲟⲛ ⲉⲧⲉⲧⲛⲁϩⲉⲣⲁⲧ ⲧⲏⲩⲧⲛ ⲛϩⲏⲧϥ
2 Hann mun verða ykkur til hjálpræðis ef þið haldið fast í trúna, annars ekki til neins.
ⲃ̅ⲁⲩⲱ ⲟⲛ ⲉⲧⲉⲧⲛⲁⲟⲩϫⲁⲓ ⲉⲃⲟⲗ ϩⲓⲧⲟⲟⲧϥ ϫⲉ ⲟⲩ ⲡⲉ ⲡϣⲁϫⲉ ⲉⲛⲧⲁⲓⲉⲩⲁⲅⲅⲉⲗⲓⲍⲉ ⲙⲙⲟϥ ⲛⲏⲧⲛ ⲉϣϫⲉ ⲧⲉⲧⲛⲁⲙⲁϩⲧⲉ ϩⲓⲃⲟⲗ ⲉϣϫⲉ ⲉⲓⲕⲏ ⲁⲛ ⲁⲧⲉⲧⲛⲡⲓⲥⲧⲉⲩⲉ
3 Ég sagði ykkur þegar frá byrjun, eins og mér hafði verið kennt, að Kristur dó vegna synda okkar – alveg eins og Biblían hafði sagt fyrir.
ⲅ̅ⲁⲓϯ ⲅⲁⲣ ⲛⲏⲧⲛ ⲛϣⲟⲣⲡ ⲙⲡⲉⲛⲧⲁⲓϫⲓⲧϥ ϫⲉ ⲡⲉⲭⲥ ⲁϥⲙⲟⲩ ϩⲁ ⲛⲉⲛⲛⲟⲃⲉ ⲕⲁⲧⲁ ⲛⲉⲅⲣⲁⲫⲏ
4 Hann var grafinn og reis á þriðja degi frá dauðum, eins og spámennirnir höfðu talað um.
ⲇ̅ⲁⲩⲱ ϫⲉ ⲁⲩⲧⲟⲙⲥϥ ⲁⲩⲱ ϫⲉ ⲁϥⲧⲱⲟⲩⲛ ϩⲙ ⲡⲙⲉϩϣⲟⲙⲛⲧ ⲛϩⲟⲟⲩ ⲕⲁⲧⲁ ⲛⲉⲅⲣⲁⲫⲏ
5 Eftir það birtist hann Pétri og því næst hinum postulunum.
ⲉ̅ⲁⲩⲱ ϫⲉ ⲁϥⲟⲩⲱⲛϩ ⲉⲃⲟⲗ ⲛⲕⲏⲫⲁ ⲉⲓⲧⲁ ⲙⲡⲙⲛⲧⲥⲛⲟⲟⲩⲥ
6 Síðan sáu hann meira en fimm hundruð trúbræður okkar í einu og eru flestir þeirra á lífi enn í dag.
ⲋ̅ⲙⲛⲛⲥⲱⲥ ⲁϥⲟⲩⲱⲛϩ ⲉⲃⲟⲗ ⲛϩⲟⲩⲟ ⲉϯⲟⲩ ⲛϣⲉ ⲛⲥⲟⲛ ⲛⲟⲩⲥⲟⲡ ⲛⲟⲩⲱⲧ ⲛⲁⲓ ⲉⲣⲉⲡⲉⲩϩⲟⲩⲟ ϣⲟⲟⲡ ϣⲁ ⲧⲉⲛⲟⲩ ϩⲟⲓⲛⲉ ⲇⲉ ⲙⲙⲟⲟⲩ ⲁⲩⲛⲕⲟⲧⲕ
7 Þá birtist hann líka Jakobi og loks postulunum öllum.
ⲍ̅ⲙⲛⲛⲥⲱⲥ ⲁϥⲟⲩⲱⲛϩ ⲉⲃⲟⲗ ⲛⲓⲁⲕⲱⲃⲟⲥ ⲉⲓⲧⲁ ⲛⲁⲡⲟⲥⲧⲟⲗⲟⲥ ⲧⲏⲣⲟⲩ
8 Síðast allra birtist hann svo mér, löngu síðar – eins og ég hefði fæðst of seint –
ⲏ̅ⲛϩⲁⲉ ⲇⲉ ⲉⲟⲩⲟⲛ ⲛⲓⲙ ⲛⲑⲉ ⲛⲟⲩϩⲟⲩϩⲉ ⲁϥⲟⲩⲱⲛϩ ϩⲱ ⲛⲁⲓ ⲉⲃⲟⲗ
9 því að ég er sístur allra postulanna og reyndar ætti ég alls ekki að kallast postuli, því að ég ofsótti söfnuðinn – kirkju Guðs.
ⲑ̅ⲁⲛⲟⲕ ⲅⲁⲣ ⲡⲉ ⲡⲉⲗⲁⲭⲓⲥⲧⲟⲥ ⲛⲁⲡⲟⲥⲧⲟⲗⲟⲥ ⲉⲛϯⲙⲡϣⲁ ⲁⲛ ⲙⲙⲟⲩⲧⲉ ⲉⲣⲟⲓ ϫⲉ ⲁⲡⲟⲥⲧⲟⲗⲟⲥ ϫⲉ ⲁⲓⲇⲓⲱⲕⲉ ⲛⲥ ⲁⲧⲉⲕⲕⲗⲏⲥⲓⲁ ⲙⲡⲛⲟⲩⲧⲉ
10 En það sem ég er nú, er allt því að þakka að Guð veitti mér óverðskuldaða miskunn og náð. Það varð ekki heldur til einskis, því ég hef lagt harðar að mér en nokkur hinna postulanna. Slíkt er þó ekki mér að þakka heldur hefur Guð komið því til leiðar.
ⲓ̅ⲑⲉ ⲇⲉ ⲉϯⲟ ⲙⲙⲟⲥ ⲉⲓⲟ ⲙⲙⲟⲥ ϩⲙ ⲡⲉϩⲙⲟⲧ ⲙⲡⲛⲟⲩⲧⲉ ⲁⲩⲱ ⲧⲉϥⲭⲁⲣⲓⲥ ⲉⲛⲧⲁⲥⲡⲱϩ ϣⲁⲣⲟⲓ ⲙⲡⲥϣⲱⲡⲉ ⲉⲥϣⲟⲩⲉⲓⲧ ⲁⲗⲗⲁ ⲁⲓϣⲡϩⲓⲥⲉ ⲉϩⲟⲩⲉ ⲉⲣⲟⲟⲩ ⲧⲏⲣⲟⲩ ⲛⲁⲛⲟⲕ ⲇⲉ ⲁⲛ ⲁⲗⲗⲁ ⲧⲉⲭⲁⲣⲓⲥ ⲙⲡⲛⲟⲩⲧⲉ ⲉⲧⲛⲙⲙⲁⲓ
11 Það skiptir ekki máli hver hefur unnið mest, ég eða þeir, mikilvægast er að við fluttum ykkur gleðiboðskapinn og að þið trúðuð honum.
ⲓ̅ⲁ̅ⲉⲓⲧⲉ ϭⲉ ⲁⲛⲟⲕ ⲉⲓⲧⲉ ⲛⲏ ⲧⲁⲓ ⲧⲉ ⲑⲉ ⲉⲧⲛⲧⲁϣⲉⲟⲉⲓϣ ⲙⲙⲟⲥ ⲁⲩⲱ ⲧⲁⲓ ⲧⲉ ⲑⲉ ⲉⲛⲧⲁⲧⲉⲧⲛⲡⲓⲥⲧⲉⲩⲉ
12 En bíðið nú við! Hvernig stendur á því að sum ykkar segja að hinir dauðu muni ekki lifna á ný, fyrst þið trúið boðskap okkar um að Kristur sé upprisinn frá dauðum?
ⲓ̅ⲃ̅ⲉϣϫⲉ ⲡⲉⲭⲥ ⲇⲉ ⲥⲉⲧⲁϣⲉⲟⲉⲓϣ ⲙⲙⲟϥ ϫⲉ ⲁϥⲧⲱⲟⲩⲛ ϩⲛ ⲛⲉⲧⲙⲟⲟⲩⲧ ⲛⲁϣ ⲛϩⲉ ⲟⲩⲛ ϩⲟⲓⲛⲉ ϫⲱ ⲙⲙⲟⲥ ⲛϩⲏⲧ ⲧⲏⲩⲧⲛ ϫⲉ ⲛⲉⲧⲙⲟⲟⲩⲧ ⲛⲁⲧⲱⲟⲩⲛ ⲁⲛ
13 Ef ekki er til upprisa dauðra, þá hlýtur Kristur að liggja dáinn í gröf sinni.
ⲓ̅ⲅ̅ⲉϣϫⲉ ⲛⲉⲧⲙⲟⲟⲩⲧ ⲛⲁⲧⲱⲟⲩⲛ ⲁⲛ ⲉⲓⲉ ⲙⲡⲉ ⲡⲉⲭⲥ ⲧⲱⲟⲩⲛ
14 Og sé hann ekki upprisinn, þá höfum við predikað til ónýtis og þá er trú ykkar og traust á Guði einskis virði, og allt vonlaust!
ⲓ̅ⲇ̅ⲉϣϫⲉ ⲙⲡⲉ ⲡⲉⲭⲥ ⲧⲱⲟⲩⲛ ⲉⲓⲉ ⲡⲉⲛⲧⲁϣⲉⲟⲉⲓϣ ϣⲟⲩⲉⲓⲧ ⲁⲩⲱ ⲥϣⲟⲩⲉⲓⲧ ⲛϭⲓ ⲧⲉⲛⲡⲓⲥⲧⲓⲥ
15 Þá erum við postularnir allir lygarar, því að við höfum staðhæft að Guð hafi reist Krist úr gröfinni – það er þá auðvitað ósatt ef dauðir geta ekki risið upp.
ⲓ̅ⲉ̅ⲥⲉⲛⲁϩⲉ ⲇⲉ ⲟⲛ ⲉⲣⲟⲛ ⲉⲛⲟ ⲙⲙⲛⲧⲣⲉ ⲛⲛⲟⲩϫ ⲉⲡⲛⲟⲩⲧⲉ ϫⲉ ⲁⲛⲣⲙⲛⲧⲣⲉ ⲙⲡⲛⲟⲩⲧⲉ ϫⲉ ⲁϥⲧⲟⲩⲛⲉⲥ ⲡⲉⲭⲥ ⲡⲁⲓ ⲉⲧⲉⲙⲡϥⲧⲟⲩⲛⲟⲥϥ
16 Ef þeir geta það ekki, þá er Kristur ekki heldur upprisinn.
ⲓ̅ⲋ̅ⲉϣϫⲉ ⲛⲉⲧⲙⲟⲟⲩⲧ ⲛⲁⲧⲱⲟⲩⲛ ⲁⲛ ⲉϣϫⲉ ⲛⲉⲧⲙⲟⲟⲩⲧ ⲅⲁⲣ ⲛⲁⲧⲱⲟⲩⲛ ⲁⲛ ⲉⲓⲉ ⲙⲡⲉ ⲡⲉⲭⲥ ⲧⲱⲟⲩⲛ
17 Þá er líka trú ykkar, að Guð geti hjálpað ykkur og frelsað, tóm vitleysa og þið þar með enn ofurseld bölvun syndarinnar.
ⲓ̅ⲍ̅ⲉϣϫⲉ ⲙⲡⲉ ⲡⲉⲭⲥ ⲧⲱⲟⲩⲛ ⲉⲓⲉ ⲥϣⲟⲩⲉⲓⲧ ⲛϭⲓ ⲧⲉⲧⲛⲡⲓⲥⲧⲓⲥ ⲁⲩⲱ ⲉⲧⲉⲓ ⲧⲉⲧⲛϣⲟⲟⲡ ϩⲛ ⲛⲉⲧⲛⲛⲟⲃⲉ
18 Þá eru þeir allir glataðir, sem dáið hafa í trú á upprisu Krists,
ⲓ̅ⲏ̅ⲉⲓⲉ ⲁⲛⲕⲟⲟⲩⲉ ⲉⲛⲧⲁⲩⲛⲕⲟⲧⲕ ϩⲙ ⲡⲉⲭⲥ ϩⲉ ⲉⲃⲟⲗ
19 og við sem nú trúum vonlaus og aumust allra manna.
ⲓ̅ⲑ̅ⲉϣϫⲉ ϩⲣⲁⲓ ϩⲙ ⲡⲉⲓⲱⲛϩ ⲙⲙⲁⲧⲉ ⲉⲛⲛⲁϩⲧⲉ ϩⲙ ⲡⲉⲭⲥ ⲉⲓⲉ ⲁⲛϩⲉⲛⲉⲃⲓⲏⲛ ⲉϩⲟⲩⲉ ⲣⲱⲙⲉ ⲛⲓⲙ
20 Nei og aftur nei! Kristur er svo sannarlega upprisinn! Hann er hinn fyrsti allra þeirra sem eiga eftir að rísa upp frá dauðum.
ⲕ̅ⲧⲉⲛⲟⲩ ⲇⲉ ⲁⲡⲉⲭⲥ ⲧⲱⲟⲩⲛ ⲉⲃⲟⲗ ϩⲛ ⲛⲉⲧⲙⲟⲟⲩⲧ ⲧⲁⲡⲁⲣⲭⲏ ⲛⲛⲉⲛⲧⲁⲩⲛⲕⲟⲧⲕ
21 Dauðinn kom inn í þennan heim vegna syndar eins manns Adams, en fyrir tilverknað Krists er nú til upprisa dauðra.
ⲕ̅ⲁ̅ⲉⲡⲉⲓⲇⲏ ⲅⲁⲣ ⲛⲧⲁⲡⲙⲟⲩ ϣⲱⲡⲉ ⲉⲃⲟⲗ ϩⲓⲧⲛ ⲟⲩⲣⲱⲙⲉ ⲉⲃⲟⲗ ϩⲓⲧⲛ ⲟⲩⲣⲱⲙⲉ ⲟⲛ ⲡⲉ ⲡⲧⲱⲟⲩⲛ ⲛⲛⲉⲧⲙⲟⲟⲩⲧ
22 A sama hátt og allir deyja vegna þess að þeir eru afkomendur Adams, svo munu og allir þeir sem tilheyra Kristi, rísa upp frá dauðum.
ⲕ̅ⲃ̅ⲛⲑⲉ ⲅⲁⲣ ⲉⲧⲟⲩⲙⲟⲩ ⲧⲏⲣⲟⲩ ϩⲛ ⲁⲇⲁⲙ ⲧⲁⲓ ⲧⲉ ⲑⲉ ϩⲙ ⲡⲉⲭⲥ ⲥⲉⲛⲁⲱⲛϩ ⲧⲏⲣⲟⲩ
23 Þó hver í réttri röð: Kristur fyrst, og síðan – er Kristur kemur aftur – munu allir sem honum tilheyra rísa upp til lífsins á ný.
ⲕ̅ⲅ̅ⲡⲟⲩⲁ ⲇⲉ ⲡⲟⲩⲁ ϩⲙ ⲡⲉϥⲧⲁⲅⲙⲁ ⲧⲁⲡⲁⲣⲭⲏ ⲡⲉⲭⲥ ⲙⲛⲛⲥⲱⲥ ⲛⲁ ⲡⲉⲭⲥ ϩⲛ ⲧⲉϥⲡⲁⲣϩⲟⲩⲥⲓⲁ
24 Þegar hann hefur lagt að velli alla óvini sína, koma endalokin og hann afhendir Guði föður konungsvald sitt.
ⲕ̅ⲇ̅ⲉⲓⲧⲁ ⲑⲁⲏ ⲉϥϣⲁⲛϯ ⲛⲧⲙⲛⲧⲣⲣⲟ ⲙⲡⲛⲟⲩⲧⲉ ⲡⲉⲓⲱⲧ ⲉϥϣⲁⲛⲟⲩⲱⲥϥ ⲛⲁⲣⲭⲏ ⲛⲓⲙ ϩⲓ ⲉⲝⲟⲩⲥⲓⲁ ⲛⲓⲙ ϩⲓϭⲟⲙ ⲛⲓⲙ
25 Kristur mun verða konungur uns hann hefur sigrað alla óvini sína,
ⲕ̅ⲉ̅ϩⲁⲡⲥ ⲅⲁⲣ ⲡⲉ ⲉⲧⲣⲉϥⲣⲣⲣⲟ ϣⲁⲛⲧϥⲕⲱ ⲛⲛⲉϥϫⲁϫⲉ ⲧⲏⲣⲟⲩ ϩⲁ ⲛⲉϥⲟⲩⲉⲣⲏⲧⲉ
26 þar á meðal síðasta óvininn, dauðann.
ⲕ̅ⲋ̅ⲡϩⲁⲉ ⲇⲉ ⲛϫⲁϫⲉ ϥⲛⲁⲟⲩⲱⲥϥ ⲉⲧⲉ ⲡⲙⲟⲩ ⲡⲉ
27 Guð gefur Kristi allt vald á himni og jörðu, en Kristur ríkir þó auðvitað ekki yfir Guði föður, sem gaf honum þetta vald og ráð.
ⲕ̅ⲍ̅ⲁϥⲕⲁ ⲛⲕⲁ ⲅⲁⲣ ⲛⲓⲙ ϩⲁ ⲛⲉϥⲟⲩⲉⲣⲏ ⲧⲉ ϩⲟⲧⲁⲛ ⲇⲉ ⲉϥϣⲁⲛϫⲟⲟⲥ ϫⲉ ⲛⲕⲁ ⲛⲓⲙ ⲁⲩϩⲩⲡⲟⲧⲁⲥⲥⲉ ⲛⲁϥ ⲉⲓⲉ ⲡⲃⲟⲗ ⲙⲡⲉⲛⲧⲁϥⲧⲣⲉ ⲛⲕⲁ ⲛⲓⲙ ϩⲩⲡⲟⲧⲁⲥⲥⲉ ⲛⲁϥ
28 Þegar Kristur hefur loks unnið sigur á öllum óvinum sínum, mun hann, sonur Guðs, fela allt undir vald föðurins, svo að Guð, sem hefur gefið honum sigur yfir öllu, mun verða allsráðandi og æðstur.
ⲕ̅ⲏ̅ϩⲟⲧⲁⲛ ⲇⲉ ⲉⲣϣⲁⲛ ⲛⲕⲁ ⲛⲓⲙ ϩⲩⲡⲟⲧⲁⲥⲥⲉ ⲛⲁϥ ⲧⲟⲧⲉ ⲛⲧⲟϥ ⲡϣⲏⲣⲉ ϥⲛⲁϩⲩⲡⲟⲧⲁⲥⲥⲉ ⲙⲡⲉⲛⲧⲁϥⲧⲣⲉ ⲛⲕⲁ ⲛⲓⲙ ϩⲩⲡⲟⲧⲁⲥⲥⲉ ⲛⲁϥ ϫⲉⲕⲁⲥ ⲉⲣⲉⲡⲛⲟⲩⲧⲉ ϣⲱⲡⲉ ⲉⲡⲧⲏⲣϥ ⲡⲉ ⲉϥϩⲙ ⲡⲧⲏⲣϥ
29 Til hvers eru menn að láta skíra sig fyrir þá dánu, ef dánir menn rísa alls ekki upp?
ⲕ̅ⲑ̅ⲉⲙⲙⲟⲛ ⲉⲩⲛⲁⲣⲟⲩ ⲛϭⲓ ⲛⲉⲧⲃⲁⲡⲧⲓⲍⲉ ϩⲁ ⲛⲉⲧⲙⲟⲟⲩⲧ ⲉϣϫⲉ ⲛⲉⲧⲙⲟⲟⲩⲧ ⲣⲱ ⲛⲁⲧⲱⲟⲩⲛ ⲁⲛ ⲁϩⲣⲟⲟⲩ ⲥⲉⲃⲁⲡⲧⲓⲍⲉ ϩⲁⲣⲟⲟⲩ
30 Og hvers vegna ættum við þá sífellt að leggja líf okkar í hættu?
ⲗ̅ⲁϩⲣⲟⲛ ϩⲱⲱⲛ ⲧⲛⲕⲓⲛⲇⲩⲛⲉⲩⲉ ⲛⲛⲁⲩ ⲛⲓⲙ
31 Dag hvern er ég í bráðri lífshættu. Það er eins satt og ég er hreykinn af því að hafa leitt ykkur til trúar á Drottin, Jesú Krist.
ⲗ̅ⲁ̅ϯⲙⲟⲩ ⲙⲙⲏⲛⲉ ϣⲉⲡⲉⲧⲛϣⲟⲩϣⲟⲩ ⲉⲧⲉⲩⲛⲧⲁⲉⲓϥ ⲛⲁⲥⲛⲏⲩ ϩⲙ ⲡⲉⲭⲥ ⲓⲏⲥ ⲡϫⲟⲉⲓⲥ
32 Og hvaða vit væri þá í því að berjast við óargadýr, eins og í Efesus, ef það væri aðeins til þess að hljóta ávinning í þessu lífi? Ef Drottinn vekur okkur ekki upp frá dauðum þá skulum við bara borða, drekka, vera glöð og njóta líðandi stundar, því að á morgun deyjum við og þá er allt búið!
ⲗ̅ⲃ̅ⲉϣϫⲉ ⲕⲁⲧⲁ ⲣⲱⲙⲉ ⲛⲧⲁⲓⲙⲓϣⲉ ⲙⲛ ⲛⲉⲑⲏⲣⲓⲟⲛ ϩⲛ ⲉⲫⲉⲥⲟⲥ ⲟⲩ ⲡⲉ ⲡⲁϩⲏⲩ ⲉϣϫⲉ ⲛⲉⲧⲙⲟⲟⲩⲧ ⲛⲁⲧⲱⲟⲩⲛ ⲁⲛ ⲙⲁⲣⲛⲟⲩⲱⲙ ⲛⲧⲛⲥⲱ ϫⲉ ⲧⲛⲛⲁⲙⲟⲩ ⲅⲁⲣ ⲛⲣⲁⲥⲧⲉ
33 Nei, látið ekki þá sem svona tala blekkja ykkur. Ef þið hlustið á þá, þá farið þið fljótlega að líkja eftir þeim.
ⲗ̅ⲅ̅ⲙⲡⲣⲡⲗⲁⲛⲁ ϣⲁⲣⲉ ⲛⲓϣⲁϫⲉ ⲉⲑⲟⲟⲩ ⲧⲁⲕⲉ ⲛⲓϩⲏⲧ ⲉⲧⲛⲁⲛⲟⲩⲟⲩ
34 Verið á verði og syndgið ekki. Ykkur til blygðunar segi ég: Sum ykkar eru hreint ekki kristin og hafa aldrei kynnst Guði í raun og veru.
ⲗ̅ⲇ̅ⲛⲏⲫⲉ ⲇⲓⲕⲁⲓⲱⲥ ⲁⲩⲱ ⲙⲡⲣⲣⲛⲟⲃⲉ ⲟⲩⲛ ϩⲟⲓⲛⲉ ⲅⲁⲣ ⲟⲛⲁⲧⲥⲟⲟⲩⲛ ⲙⲡⲛⲟⲩⲧⲉ ⲉⲓϫⲱ ⲛⲛⲁⲓ ⲉⲓϯϣⲓⲡⲉ ⲛⲏⲧⲛ
35 Nú kann einhver að spyrja: „Hvernig munu dauðir rísa upp? Hvers konar líkama munu þeir fá?“
ⲗ̅ⲉ̅ⲁⲗⲗⲁ ⲟⲩⲛ ⲟⲩⲁ ⲛⲁϫⲟⲟⲥ ϫⲉ ⲉⲣⲉⲛⲉⲧⲙⲟⲟⲩⲧ ⲛⲁⲧⲱⲟⲩⲛ ⲛⲁϣ ⲛϩⲉ ⲉⲩⲛⲏⲩ ⲇⲉ ϩⲛ ⲁϣ ⲛⲥⲱⲙⲁ
36 Svona spurning er óþörf. Líttu á garðinn þinn. Þegar þú sáir fræi í mold, þá verður það ekki að jurt nema það deyi fyrst.
ⲗ̅ⲋ̅ⲡⲁⲑⲏⲧ ⲛⲧⲟⲕ ⲡⲉϣⲁϥϫⲟϥ ⲙⲉϥⲱⲛϩ ⲉⲓ ⲙⲏⲧⲓ ⲛϥⲙⲟⲩ
37 Græni sprotinn, sem springur út úr fræinu, er harla ólíkur fræinu sem þú sáðir. Það sem þú sáðir í moldina var örsmátt korn – hvort sem það var hveiti eða eitthvað annað.
ⲗ̅ⲍ̅ⲁⲩⲱ ⲙⲡⲥⲱⲙⲁ ⲁⲛ ⲉⲧⲛⲁϣⲱⲡⲉ ⲡⲉϣⲁⲕϫⲟϥ ⲁⲗⲗⲁ ⲟⲩⲃⲗⲃⲓⲗⲉ ⲧⲉ ⲉⲥⲕⲏⲕⲁϩⲏⲩ ⲛⲥⲟⲩⲟ ⲏ ⲙⲡⲕⲉⲥⲉⲉⲡⲉ ⲛϭⲣⲟϭ
38 Síðan gefur Guð því nýjan líkama, einmitt af þeirri gerð sem hann sjálfur vill. Af hverri frætegund vex sérstök jurt, ólík öðrum tegundum.
ⲗ̅ⲏ̅ϣⲁⲣⲉ ⲡⲛⲟⲩⲧⲉ ⲇⲉ ϯⲛⲁϥ ⲛⲟⲩⲥⲱⲙⲁ ⲕⲁⲧⲁ ⲑⲉ ⲉⲧϥⲟⲩⲁϣⲥ ⲁⲩⲱ ⲟⲩⲥⲱⲙⲁ ⲙⲡⲟⲩⲁ ⲡⲟⲩⲁ ⲛⲛⲉϭⲣⲱⲱϭ ⲕⲁⲧⲁⲣⲟϥ
39 Rétt eins og til eru mismunandi tegundir jurta, þannig eru til mismunandi gerðir holds: Menn, dýr, fiskar, fuglar – allt er þetta sitt með hverju móti.
ⲗ̅ⲑ̅ⲛⲟⲩⲥⲁⲣⲝ ⲛⲟⲩⲱⲧ ⲁⲛ ⲧⲉ ⲥⲁⲣⲝ ⲛⲓⲙ ⲁⲗⲗⲁ ⲟⲩⲉⲧ ⲧⲁⲛⲣⲱⲙⲉ ⲁⲩⲱ ⲟⲩⲉⲧ ⲧⲥⲁⲣⲝ ⲛⲛⲧⲃⲛⲏ ⲁⲩⲱ ⲟⲩⲉⲧ ⲧⲥⲁⲣⲝ ⲛⲛϩⲁⲗⲏⲧ ⲁⲩⲱ ⲟⲩⲉⲧ ⲧⲁ ⲛⲧⲃⲧ
40 Englarnir á himnum hafa líkama, sem eru gjörólíkir okkar. Fegurð þeirra og vegsemd er önnur en fegurð og vegsemd okkar.
ⲙ̅ⲙⲛ ⲛⲥⲱⲙⲁ ⲉⲧϩⲛ ⲧⲡⲉ ⲙⲛ ⲛⲥⲱⲙⲁ ⲉⲧϩⲙ ⲡⲕⲁϩ ⲁⲗⲗⲁ ⲟⲩⲉⲧ ⲡⲉⲟⲟⲩ ⲙⲉⲛ ⲛⲛⲉⲧϩⲛ ⲧⲡⲉ ⲟⲩⲉⲧ ⲡⲉⲟⲟⲩ ⲇⲉ ⲛⲛⲉⲧϩⲙ ⲡⲕⲁϩ
41 Sólin er dýrleg í ljóma sínum, og tunglið og stjörnurnar eru það líka, en þó á annan hátt, og innbyrðis ber stjarna af stjörnu í birtu og ljóma.
ⲙ̅ⲁ̅ⲟⲩⲉⲧ ⲡⲉⲟⲟⲩ ⲙⲡⲣⲏ ⲟⲩⲉⲧ ⲡⲉⲟⲟⲩ ⲙⲡⲟⲟϩ ⲟⲩⲉⲧ ⲡⲉⲟⲟⲩ ⲛⲛⲥⲓⲟⲩ ⲟⲩⲛ ⲥⲓⲟⲩ ⲅⲁⲣ ϣⲟⲃⲉ ⲉⲥⲓⲟⲩ ϩⲙ ⲡⲉⲟⲟⲩ
42 Á sama hátt eru jarðneskir líkamar okkar, sem deyja og rotna, ólíkir þeim líkömum sem við fáum í upprisunni, því að þeir munu aldrei deyja.
ⲙ̅ⲃ̅ⲧⲁⲓ ⲧⲉ ⲑⲉ ⲙⲡⲕⲉⲧⲱⲟⲩⲛ ⲛⲛⲉⲧⲙⲟⲟⲩⲧ ⲥⲉⲛⲁϫⲟϥ ϩⲛ ⲟⲩⲧⲁⲕⲟ ⲛϥⲧⲱⲟⲩⲛ ϩⲛ ⲟⲩⲙⲛⲧⲁⲧⲧⲁⲕⲟ
43 Þeir líkamar sem við höfum nú, valda okkur oft erfiðleikum, því að þeir sýkjast, hrörna og deyja, en í upprisunni munu þeir breytast á dýrlegan hátt. Nú eru þeir veikbyggðir og dauðlegir, en þá verða þeir þrungnir lífskrafti.
ⲙ̅ⲅ̅ⲥⲉⲛⲁϫⲟϥ ϩⲛ ⲟⲩⲥⲱϣ ⲛϥⲧⲱⲟⲩⲛ ϩⲛ ⲟⲩⲉⲟⲟⲩ ⲥⲉⲛⲁϫⲟϥ ϩⲛ ⲟⲩⲙⲛⲧϭⲱⲃ ⲛϥⲧⲱⲟⲩⲛ ϩⲛ ⲟⲩϭⲟⲙ
44 Í dauðanum eru þeir mannlegir líkamar, en í upprisunni himneskir líkamar.
ⲙ̅ⲇ̅ⲥⲉⲛⲁϫⲟϥ ⲛⲥⲱⲙⲁ ⲙⲯⲩⲭⲓⲕⲟⲛ ⲛϥⲧⲱⲟⲩⲛ ⲛⲥⲱⲙⲁ ⲙⲡⲛⲁⲧⲓⲕⲟⲛ ⲉϣϫⲉ ⲟⲩⲛ ⲥⲱⲙⲁ ⲙⲯⲩⲭⲓⲕⲟⲛ ⲟⲩⲛ ⲥⲱⲙⲁ ⲟⲛ ⲙⲡⲛⲁⲧⲓⲕⲟⲛ
45 Biblían segir að hinum fyrsta manni, Adam, hafi verið gefinn jarðneskur líkami en Kristur er meira en það, því að hann er lífgefandi andi.
ⲙ̅ⲉ̅ⲧⲁⲓ ⲧⲉ ⲑⲉ ⲉⲧⲥⲏϩ ϫⲉ ⲁⲡϣⲟⲣⲡ ⲛⲣⲱⲙⲉ ⲁⲇⲁⲙ ϣⲱⲡⲉ ⲉⲩⲯⲩⲭⲏ ⲉⲥⲟⲛϩ ⲡϩⲁⲉ ⲇⲉ ⲁⲇⲁⲙ ⲉⲩⲡⲛⲁ ⲉϥⲧⲁⲛϩⲟ
46 Sem sagt: Fyrst höfum við jarðneskan líkama, en síðan gefur Guð okkur andlegan, himneskan líkama.
ⲙ̅ⲋ̅ⲁⲗⲗⲁ ⲙⲡϣⲟⲣⲡ ⲁⲛ ⲡⲉ ⲡⲉⲡⲛⲁⲧⲓⲕⲟⲛ ⲁⲗⲗⲁ ⲡⲉⲯⲩⲭⲓⲕⲟⲛ ⲙⲛⲛⲥⲱⲥ ⲡⲉⲡⲛⲁⲧⲓⲕⲟⲛ
47 Adam var myndaður af efnum jarðar, en Kristur kemur af himnum.
ⲙ̅ⲍ̅ⲡϣⲟⲣⲡ ⲛⲣⲱⲙⲉ ⲟⲩⲕⲁϩ ⲡⲉ ⲉⲃⲟⲗ ϩⲙ ⲡⲕⲁϩ ⲡⲙⲉϩ ⲥⲛⲁⲩ ⲟⲩⲉⲃⲟⲗ ϩⲛ ⲧⲡⲉ ⲡⲉ
48 Sérhver maður hefur líkama af sömu gerð og Adam, úr jarðnesku efni, en allir sem Kristi tilheyra, munu hljóta sams konar líkama og hann – himneskan líkama.
ⲙ̅ⲏ̅ⲛⲑⲉ ⲙⲡⲉⲃⲟⲗ ϩⲙ ⲡⲕⲁϩ ⲧⲁⲓ ⲧⲉ ⲑⲉ ⲛⲛⲉⲃⲟⲗ ϩⲙ ⲡⲕⲁϩ ⲁⲩⲱ ⲛⲑⲉ ⲙⲡⲉⲃⲟⲗ ϩⲛ ⲧⲡⲉ ⲧⲁⲓ ⲧⲉ ⲑⲉ ⲛⲛⲉⲃⲟⲗ ϩⲛ ⲧⲡⲉ
49 Eins og við nú höfum sams konar líkama og Adam, munum við í upprisunni fá sams konar líkama og Kristur.
ⲙ̅ⲑ̅ⲁⲩⲱ ⲕⲁⲧⲁ ⲑⲉ ⲉⲛⲧⲁⲛⲫⲟⲣⲓ ⲛⲑⲓⲕⲱⲛ ⲙⲡⲉⲃⲟⲗ ϩⲙ ⲡⲕⲁϩ ⲧⲛⲛⲁⲫⲟⲣⲓ ⲟⲛ ⲛⲑⲓⲕⲱⲛ ⲙⲡⲉⲃⲟⲗ ϩⲛ ⲧⲡⲉ
50 Því segi ég ykkur, kæru vinir, jarðneskur líkami úr holdi og blóði getur ekki komist inn í guðsríki, því að okkar dauðlegu líkamar geta ekki lifað að eilífu.
ⲛ̅ⲡⲁⲓ ⲇⲉ ϯϫⲱ ⲙⲙⲟϥ ⲛⲁⲥⲛⲏⲩ ϫⲉ ⲛⲛⲉϣ ⲥⲁⲣⲝ ϩⲓ ⲥⲛⲟϥ ⲕⲗⲏⲣⲟⲛⲟⲙⲓ ⲛⲧⲙⲛⲧⲣⲣⲟ ⲙⲡⲛⲟⲩⲧⲉ ⲟⲩⲇⲉ ⲡⲧⲁⲕⲟ ⲛⲁⲕⲗⲏⲣⲟⲛⲟⲙⲓ ⲁⲛ ⲛⲧⲙⲛⲧⲁⲧⲧⲁⲕⲟ
51 En nú segi ég ykkur furðulegan og dásamlegan leyndardóm: Við munum ekki öll deyja, en þó munum við öll fá nýjan líkama – við munum umbreytast! Allt mun þetta gerast á svipstundu, þegar síðasti lúðurinn hljómar.
ⲛ̅ⲁ̅ⲉⲓⲥ ϩⲏⲏⲧⲉ ϯϫⲱ ⲛⲏⲧⲛ ⲛⲟⲩⲙⲩⲥⲧⲏⲣⲓⲟⲛ ϫⲉ ⲁⲛⲟⲛ ⲙⲉⲛ ⲧⲏⲣⲛ ⲧⲛⲛⲁⲛⲕⲧⲟⲕ ⲁⲛ ⲁⲛⲟⲛ ⲇⲉ ⲧⲏⲣⲛ ⲧⲛⲛⲁϣⲓⲃⲉ
52 Þá munu allir kristnir menn, sem dánir eru, rísa upp, íklæddir nýjum líkömum, sem aldrei hrörna eða deyja. Þeir sem þá verða enn á lífi, munu allt í einu umbreytast og fá nýjan líkama eins og hinir.
ⲛ̅ⲃ̅ϩⲛ ⲟⲩϣⲡⲛϣⲱⲡ ϩⲛ ⲟⲩⲣⲓⲕⲉ ⲛⲃⲁⲗ ϩⲛ ⲑⲁⲏ ⲛⲥⲁⲗⲡⲓⲅⲝ ϥⲛⲁⲥⲁⲗⲡⲓⲍⲉ ⲅⲁⲣ ⲛⲧⲉ ⲛⲉⲧⲙⲟⲟⲩⲧ ⲧⲱⲟⲩⲛ ⲉⲩⲟ ⲛⲁⲧⲧⲁⲕⲟ ⲁⲩⲱ ⲁⲛⲟⲛ ⲧⲛⲛⲁϣⲓⲃⲉ
53 Þessir jarðnesku dauðlegu líkamar okkar, sem við berum nú, verða að umbreytast í himneska líkama sem aldrei deyja.
ⲛ̅ⲅ̅ϩⲁⲡⲥ ⲅⲁⲣ ⲉⲧⲣⲉ ⲡⲁⲓ ⲉϣⲁϥⲧⲁⲕⲟ ϯϩⲓⲱⲱϥ ⲛⲟⲩⲙⲛⲧⲁⲧⲧⲁⲕⲟ ⲁⲩⲱ ⲡⲁⲓ ⲉϣⲁϥⲙⲟⲩ ⲉⲧⲣⲉϥϯ ϩⲓⲱⲱϥ ⲛⲧⲙⲛⲧⲁⲧⲙⲟⲩ
54 Þegar þetta gerist, munu rætast þessi orð Biblíunnar: „Dauðinn er uppsvelgdur í sigur.
ⲛ̅ⲇ̅ϩⲟⲧⲁⲛ ⲇⲉ ⲉⲣϣⲁⲛ ⲡⲁⲓ ⲉϣⲁϥⲙⲟⲩ ϯϩⲓⲱⲱϥ ⲛⲧⲙⲛⲧⲁⲧⲙⲟⲩ ⲧⲟⲧⲉ ϥⲛⲁϣⲱⲡⲉ ⲛϭⲓ ⲡϣⲁϫⲉ ⲉⲧⲥⲏϩ ϫⲉ ⲁⲩⲉⲙⲕⲡⲙⲟⲩ ⲉⲩϫⲣⲟ
55 Dauði, hvar er sigur þinn? Hvar er broddur þinn?“Syndin – broddurinn sem veldur dauða – verður þá orðin að engu og lögmálið, sem afhjúpar syndir okkar, mun ekki lengur dæma okkur. (Hadēs )
ⲛ̅ⲉ̅ⲡⲙⲟⲩ ⲉϥⲧⲱⲛ ⲧⲉⲕϫⲣⲟ ⲡⲙⲟⲩ ⲉϥⲧⲱⲛ ⲡⲉⲕⲓⲉⲓⲃ (Hadēs )
ⲛ̅ⲋ̅ⲡⲓⲉⲓⲃ ⲇⲉ ⲙⲡⲙⲟⲩ ⲡⲉ ⲡⲛⲟⲃⲉ ⲧϭⲟⲙ ⲇⲉ ⲙⲡⲛⲟⲃⲉ ⲡⲉ ⲡⲛⲟⲙⲟⲥ
57 Þökkum Guði fyrir allt þetta. Það er Guð sem gefur okkur sigurinn fyrir Drottin, Jesú Krist.
ⲛ̅ⲍ̅ⲡⲉϩⲙⲟⲧ ⲇⲉ ⲙⲡⲛⲟⲩⲧⲉ ϣⲏⲡ ⲡⲁⲓ ⲉⲧϯ ⲛⲁⲛ ⲙⲡⲉϫⲣⲟ ϩⲓⲧⲛ ⲡⲉⲛϫⲟⲉⲓⲥ ⲓⲏⲥ ⲡⲉⲭⲥ
58 Kæru vinir – framtíðarsigurinn er tryggður! Verið því sterk, óbifanleg, sístarfandi fyrir Drottin, og vitið að ekkert, sem þið gerið fyrir hann, er til einskis.
ⲛ̅ⲏ̅ϩⲱⲥⲧⲉ ⲛⲁⲥⲛⲏⲩ ⲙⲙⲉⲣⲓⲧ ϣⲱⲡⲉ ⲉⲧⲉⲧⲛⲧⲁϫⲣⲏⲩ ⲉⲛⲥⲉⲡⲱⲱⲛⲉ ⲙⲙⲱⲧⲛ ⲁⲛ ⲉⲧⲉⲧⲛⲟ ⲛϩⲟⲩⲟ ϩⲙ ⲡϩⲱⲃ ⲙⲡϫⲟⲉⲓⲥ ⲛⲟⲩⲟⲉⲓϣ ⲛⲓⲙ ⲉⲧⲉⲧⲛⲥⲟⲟⲩⲛ ϫⲉ ⲡⲉⲧⲛϩⲓⲥⲉ ϣⲟⲩⲉⲓⲧ ⲁⲛ ϩⲙ ⲡϫⲟⲉⲓⲥ