< 1 Korintubréf 12 >

1 Vinir, nú langar mig að minnast á þá sérstöku hæfileika – náðargjafir – sem heilagur andi gefur hverju og einu ykkar, því að ég vil ekki að neinn misskilningur sé um þau efni.
Now concerning spiritual things, brothers, I do not want you to be ignorant.
2 Þið munið að áður en þið urðuð kristin, eltust þið við hvern hjáguðinn á fætur öðrum og enginn þeirra gat sagt eitt einasta orð.
You know that when you were unbelievers, you were led away to those mute idols, however you might be led.
3 Nú kynnist þið hins vegar fólki sem telur sig flytja boð frá anda Guðs. Hvernig getið þið þekkt hvort boðin eru frá heilögum anda eða fölsuð? Það getið þið á þessu: Enginn, sem bölvar Jesú eða lítilsvirðir hann, getur talað af innblæstri heilags anda og enginn getur sagt: „Jesús er konungurinn, hann er Drottinn, “og meint það, án hjálpar heilags anda.
Therefore I make known to you that no one speaking by God's Spirit says, "Jesus is accursed." No one can say, "Jesus is Lord," but by the Holy Spirit.
4 Guð gefur okkur margvíslegar náðargjafir og þær eru allar komnar frá einum og sama andanum – heilögum anda.
Now there are various kinds of gifts, but the same Spirit.
5 Hægt er að þjóna Guði á marga vegu.
There are various kinds of service, and the same Lord.
6 Guð starfar á ýmsan hátt í lífi okkar, en samt er það hinn eini sanni Guð, sem vinnur verkið.
There are various kinds of workings, but the same God, who works all things in all.
7 Heilagur andi opinberar kraft Guðs í hverjum og einum, með þeim hætti sem helst verður kirkju hans til eflingar.
But to each one is given the manifestation of the Spirit for the profit of all.
8 Einum gefur andi Guðs hæfileika til að veita góð ráð – tala vísdómsorð. Öðrum er gefið að geta talað af þekkingu og það kemur frá sama anda.
For to one is given through the Spirit the word of wisdom, and to another the word of knowledge, according to the same Spirit;
9 Öðrum gefur hann mikla trú og enn öðrum kraft til að lækna sjúka.
to another faith, by the same Spirit; and to another gifts of healings, by the one Spirit;
10 Sumum gefur hann hæfileika til að gera kraftaverk, öðrum að geta spáð og predikað af innblæstri. Aðrir fá hæfileika til að skynja hvort illir andar tali í gegnum þá um það sem þeir ekki vita. Enn aðrir geta talað tungumál, sem þeir hafa aldrei lært – talað tungum – og öðrum sem ekki kunna viðkomandi tungumál, er gefið að skilja hvað hinn segir.
and to another workings of miracles; and to another prophecy; and to another discernings of spirits; to another different kinds of tongues; and to another the interpretation of tongues.
11 Hinn sami heilagi andi gefur allar þessar gjafir og hann ákveður hvað hver og einn okkar skuli hljóta.
But the one and the same Spirit works all of these, distributing to each one separately as he desires.
12 Margir líkamshlutar mynda saman einn líkama. Þannig er einnig með líkama Krists – kirkjuna.
For as the body is one, and has many members, and all the members of the body, being many, are one body; so also is Christ.
13 Hvert og eitt okkar er hluti af líkama Krists. Sumir eru Gyðingar, aðrir Grikkir, sumir eru þrælar, aðrir frjálsir, en heilagur andi hefur í skírninni tengt okkur öll saman í líkama Krists og öll höfum við fengið hlutdeild í sama heilaga anda.
For in one Spirit we were all baptized into one body, whether Jews or Greeks, whether bond or free; and were all given to drink of one Spirit.
14 Líkaminn hefur marga líkamshluta, ekki aðeins einn.
For the body is not one member, but many.
15 Ef fóturinn segði: „Ég er ekki hönd, og mig varðar því ekkert um líkamann“þá yrði hann samt ekki líkamanum óviðkomandi.
If the foot would say, "Because I'm not a hand, I'm not part of the body," that would not make it less a part of the body.
16 Og hvað fyndist þér ef þú heyrðir eyrað segja: „Ég tilheyri ekki þessum líkama, því að ég er aðeins eyra en ekki auga!“Væri það þá laust við líkamann?
And if the ear would say, "Because I'm not the eye, I'm not part of the body," that would not make it less a part of the body.
17 Ef líkaminn væri allur eitt auga, hvernig gæti hann þá heyrt? Eða væri hann aðeins eitt stórt eyra, gæti hann þá fundið lykt?
If the whole body were an eye, where would the hearing be? If the whole were an ear, where would the sense of smell be?
18 Nei, þannig skapaði Guð okkur ekki. Hann skapaði okkur með marga líkamshluta og hver hluti er á réttum stað.
But as a matter of fact, God has arranged the members of the body, each one of them, according to his design.
19 Það væri furðulegur líkami, sem væri aðeins einn limur!
If they were all the same member, where would the body be?
20 Guð gerði því marga líkamshluta – marga limi – sem saman mynda einn líkama.
So now there are many members, but one body.
21 Augað getur aldrei sagt við höndina: „Ég þarf ekkert á þér að halda!“Og höfuðið getur ekki sagt við fótinn: „Ég hef enga þörf fyrir þig!“
The eye cannot say to the hand, "I have no need for you," or again the head to the feet, "I have no need for you."
22 Sumir þeir líkamshlutar sem virðast veikbyggðastir, eru jafnvel nauðsynlegastir.
On the contrary, those members which seem to be weaker are essential,
23 Já, við erum ánægð yfir að hafa vissa hluta sem skrýtnir eru. Og þá sem við viljum ekki að aðrir sjái og sem við blygðumst okkar fyrir, hyljum við vandlega,
and the parts which we think less honorable we treat with greater honor, and our unpresentable parts are treated with dignity,
24 meðan þeir líkamshlutar, sem allir mega sjá, krefjast ekki slíkrar umhyggju. Guð kom því þannig fyrir að meiri umhyggja og virðing er sýnd þeim sem gætu virst minni háttar.
whereas our presentable parts have no such need. But God has put the body together, giving greater honor to the lesser member,
25 Þetta hefur það í för með sér að allir líkamshlutarnir eru ánægðir og bera sömu umhyggju hver fyrir öðrum og þeir bera fyrir sjálfum sér.
that there may be no division in the body, but that the members should have the same concern for one another.
26 Ef einn limur þjáist, finna allir til með honum og veitist einhverjum sæmd, samgleðjast allir hinir.
When one member suffers, all the members suffer with it. If a member is honored, all rejoice with it.
27 Jæja, ég er að reyna að segja þetta: Þið eruð öll sameiginlega líkami Krists og hver um sig sérstakur og nauðsynlegur hluti hans.
Now you are the body of Christ, and members individually.
28 Í kirkju sinni, sem er líkami hans, hefur hann í fyrsta lagi postula, í öðru lagi spámenn – þá sem af innblæstri heilags anda flytja boðskap frá Guði – og í þriðja lagi kennara. Sumir gera kraftaverk, aðrir hafa hæfileika til að lækna, enn aðrir helga sig líknarstörfum. Sumir hafa skipulagsgáfu, – eiga gott með að láta menn vinna saman, – og tala tungum – tala tungumál sem þeir hafa ekki lært.
God has set some in the church: first apostles, second prophets, third teachers, then miracle workers, then gifts of healings, helps, governments, and various kinds of tongues.
29 Eru allir postular? Auðvitað ekki! Eru allir postular og spámenn? Nei. Eru allir kennarar? Gera allir kraftaverk?
Are all apostles? Are all prophets? Are all teachers? Are all miracle workers?
30 Fást allir við lækningar? Vitaskuld ekki! Tala allir tungum? Útlista allir tungutal?
Do all have gifts of healings? Do all speak with tongues? Do all interpret?
31 Nei, en keppist öll eftir því að eignast þá af þessum hæfileikum sem mikilvægastir eru. Leyfið mér nú að segja ykkur frá öðru sem er betra en allir þessir hæfileikar.
But earnestly desire the greater gifts. Moreover, I show a most excellent way to you.

< 1 Korintubréf 12 >