< 1 Korintubréf 10 >
1 Gleymum aldrei, vinir mínir, því sem kom fyrir þjóð okkar í eyðimörkinni forðum. Guð vísaði þeim veginn með skýi sem fór á undan þeim, og leiddi þá heilu og höldnu yfir Rauðahafið.
ου θελω δε υμας αγνοειν αδελφοι οτι οι πατερες ημων παντες υπο την νεφελην ησαν και παντες δια της θαλασσης διηλθον
2 Þetta mætti kalla skírn þeirra til fylgdar við Móse – því þeir voru skírðir bæði í hafinu og skýinu.
και παντες εις τον μωσην εβαπτισαντο εν τη νεφελη και εν τη θαλασση
3 Og á yfirnáttúrlegan hátt sendi Guð þeim fæðu að eta og vatn að drekka þarna í miðri eyðimörkinni – þeir drukku vatnið sem Kristur gaf þeim. Hann var þar hjá þeim eins og klettur og veitti andlega svölun og endurnæringu.
και παντες το αυτο βρωμα πνευματικον εφαγον
και παντες το αυτο πομα πνευματικον επιον επινον γαρ εκ πνευματικης ακολουθουσης πετρας η δε πετρα ην ο χριστος
5 En þrátt fyrir allt þetta, þá óhlýðnuðust flestir þeirra Guði og hann lét þá falla í eyðimörkinni.
αλλ ουκ εν τοις πλειοσιν αυτων ευδοκησεν ο θεος κατεστρωθησαν γαρ εν τη ερημω
6 Af þessu sjáum við að við eigum ekki að girnast það sem illt er, eins og þeir gerðu,
ταυτα δε τυποι ημων εγενηθησαν εις το μη ειναι ημας επιθυμητας κακων καθως κακεινοι επεθυμησαν
7 né tilbiðja hjáguði, eins og þeir. Biblían segir: Fólkið settist niður til að eta og drekka og stóð upp til að dansa – kring um gullkálfinn.
μηδε ειδωλολατραι γινεσθε καθως τινες αυτων ως γεγραπται εκαθισεν ο λαος φαγειν και πιειν και ανεστησαν παιζειν
8 Önnur aðvörun felst í því sem gerðist þegar sumir þeirra drýgðu hór. Afleiðing þess var að 23.000 þeirra dóu á einum degi!
μηδε πορνευωμεν καθως τινες αυτων επορνευσαν και επεσον εν μια ημερα εικοσιτρεις χιλιαδες
9 Misbjóðið ekki heldur þolinmæði Drottins, það gerðu þeir og dóu því af höggormsbitum.
μηδε εκπειραζωμεν τον χριστον καθως και τινες αυτων επειρασαν και υπο των οφεων απωλοντο
10 Kvartið ekki gegn Guði og verkum hans, eins og þeir gerðu, munið að Guð sendi engil sinn til að eyða þeim.
μηδε γογγυζετε καθως και τινες αυτων εγογγυσαν και απωλοντο υπο του ολοθρευτου
11 Allt þetta henti þá, okkur til viðvörunar. Þessir atburðir voru færðir í letur til þess að við gætum lesið um þá og lært af þeim nú er endalok heimsins nálgast. (aiōn )
ταυτα δε παντα τυποι συνεβαινον εκεινοις εγραφη δε προς νουθεσιαν ημων εις ους τα τελη των αιωνων κατηντησεν (aiōn )
12 Gætið því að ykkur. Hugsið ekki sem svo: Þannig mundi ég aldrei hegða mér, þetta kemur aldrei fyrir mig! Látið þetta ykkur að kenningu verða, því þið gætuð líka gert rangt.
ωστε ο δοκων εσταναι βλεπετω μη πεση
13 En munið þetta: Þær girndir sem þið þurfið að takast á við í lífi ykkar, eru ekkert nýtt eða einstakt. Margir hafa áður orðið að kljást við sömu vandamál og þið. En engin freisting er óyfirstíganleg. Þið getið treyst því að Guð muni ekki leyfa freistingunni að sigra ykkur. Þessu hefur hann lofað og hann stendur við orð sín. Hann mun sýna ykkur leið til að komast undan freistingunni, til þess að þið getið staðist hana ef þið viljið.
πειρασμος υμας ουκ ειληφεν ει μη ανθρωπινος πιστος δε ο θεος ος ουκ εασει υμας πειρασθηναι υπερ ο δυνασθε αλλα ποιησει συν τω πειρασμω και την εκβασιν του δυνασθαι υμας υπενεγκειν
14 Gætið þess, vinir mínir umfram allt, að forðast hvers konar hjáguðadýrkun.
διοπερ αγαπητοι μου φευγετε απο της ειδωλολατρειας
15 Þið eruð skynsemdarfólk. Dæmið því um það sem ég ætla nú að segja:
ως φρονιμοις λεγω κρινατε υμεις ο φημι
16 Þegar við biðjum um blessun Guðs yfir bikarinn, sem við drekkum af við heilaga kvöldmáltíð, þýðir það þá ekki að allir, sem drekka af honum, njóti saman blessunar af blóði Krists? Og þegar við brjótum brauðið og neytum þess saman, þá sýnir það að við njótum öll sameiginlega gjafa líkama hans.
το ποτηριον της ευλογιας ο ευλογουμεν ουχι κοινωνια του αιματος του χριστου εστιν τον αρτον ον κλωμεν ουχι κοινωνια του σωματος του χριστου εστιν
17 Ekki skiptir máli hve mörg við erum, við neytum öll af sama brauði og sýnum þar með að við erum öll limir á líkama Krists.
οτι εις αρτος εν σωμα οι πολλοι εσμεν οι γαρ παντες εκ του ενος αρτου μετεχομεν
18 Eins er með Gyðingana, allir sem borða fórnarkjötið eru sameinaðir, bæði innbyrðis og í Guði, í þeirri athöfn.
βλεπετε τον ισραηλ κατα σαρκα ουχι οι εσθιοντες τας θυσιας κοινωνοι του θυσιαστηριου εισιν
19 Hvað er ég að reyna að segja? Er ég að segja að skurðgoðin, sem heiðingjarnir færa fórnir, séu lifandi og raunverulegir guðir og að kjöt, þeim fórnað, verði fyrir illum áhrifum? Nei, alls ekki.
τι ουν φημι οτι ειδωλον τι εστιν η οτι ειδωλοθυτον τι εστιν
20 Ég á við að þeir, sem fórna til þessara skurðgoða, eru sameinaðir í því að fórna til illra anda en alls ekki Guðs og ég vil ekki að neitt ykkar eigi samfélag við illa anda.
αλλ οτι α θυει τα εθνη δαιμονιοις θυει και ου θεω ου θελω δε υμας κοινωνους των δαιμονιων γινεσθαι
21 Þið getið ekki drukkið af bikar Drottins og einnig af bikar Satans. Þið getið ekki meðtekið brauð við máltíð Drottins og einnig við borð illra anda.
ου δυνασθε ποτηριον κυριου πινειν και ποτηριον δαιμονιων ου δυνασθε τραπεζης κυριου μετεχειν και τραπεζης δαιμονιων
22 Eigum við að reita Drottin til reiði? Erum við öflugri en hann?
η παραζηλουμεν τον κυριον μη ισχυροτεροι αυτου εσμεν
23 Auðvitað megið þið borða mat sem fórnað hefur verið skurðgoðum, ef þið viljið. Neysla slíks kjöt er ekki brot á lögum Guðs, en það þýðir þó ekki að þið eigið að gera það. Það getur verið leyfilegt en kann þó að vera óráðlegt.
παντα μοι εξεστιν αλλ ου παντα συμφερει παντα μοι εξεστιν αλλ ου παντα οικοδομει
24 Hugsið ekki aðeins um ykkur sjálf. Reynið líka að hugsa um meðbróður ykkar og systur og hvað þeim sé fyrir bestu.
μηδεις το εαυτου ζητειτω αλλα το του ετερου εκαστος
25 Farið þannig að: Kaupið það kjöt sem selt er á torginu. Spyrjið ekki hvort það sé fórnarkjöt.
παν το εν μακελλω πωλουμενον εσθιετε μηδεν ανακρινοντες δια την συνειδησιν
26 Jörðin og öll hennar gæði tilheyra Guði og eru ykkur til gagns og gleði.
του γαρ κυριου η γη και το πληρωμα αυτης
27 Ef einhver, sem ekki er kristinn, býður þér í kvöldmat, þá skaltu hiklaust þiggja boðið ef þú vilt. Borðaðu allt sem fyrir þig er sett og spurðu einskis. Þá veistu ekki hvort maturinn hefur verið notaður til fórna eða ekki, og átt því ekki á hættu að fá samviskubit.
ει δε τις καλει υμας των απιστων και θελετε πορευεσθαι παν το παρατιθεμενον υμιν εσθιετε μηδεν ανακρινοντες δια την συνειδησιν
28 En ef einhver aðvarar þig og segir að þetta sé fórnarkjöt, skaltu ekki borða það, af tillitssemi við þann sem varaði þig við og samvisku hans.
εαν δε τις υμιν ειπη τουτο ειδωλοθυτον εστιν μη εσθιετε δι εκεινον τον μηνυσαντα και την συνειδησιν του γαρ κυριου η γη και το πληρωμα αυτης
29 Í þessu tilviki er það hans afstaða sem máli skiptir en ekki þín. Nú finnst þér ef til vill undarlegt hvers vegna þér ber að láta skoðanir annarra hafa áhrif á og stjórna gerðum þínum.
συνειδησιν δε λεγω ουχι την εαυτου αλλα την του ετερου ινα τι γαρ η ελευθερια μου κρινεται υπο αλλης συνειδησεως
30 Geti ég þakkað Guði fyrir matinn og notið hans, hvers vegna á ég þá að láta einhvern annan eyðileggja allt, bara af því að honum finnst ég hafa rangt fyrir mér?
ει δε εγω χαριτι μετεχω τι βλασφημουμαι υπερ ου εγω ευχαριστω
31 Jú, sjáið til. Það er vegna þess að allt sem þið gerið á að vera Drottni til dýrðar, jafnvel matur ykkar og drykkur.
ειτε ουν εσθιετε ειτε πινετε ειτε τι ποιειτε παντα εις δοξαν θεου ποιειτε
32 Verið því ekki öðrum til hneykslunar, hvort sem það eru Gyðingar, heiðingjar eða trúbræður.
απροσκοποι γινεσθε και ιουδαιοις και ελλησιν και τη εκκλησια του θεου
33 Þannig fer ég að: Ég reyni að þóknast öllum í öllu sem ég geri, og hugsa þá ekki aðeins um það sem mér fellur best eða gagnast mest, heldur um það sem getur orðið þeim fyrir bestu, svo að þeim verði bjargað – þeir frelsist.
καθως καγω παντα πασιν αρεσκω μη ζητων το εμαυτου συμφερον αλλα το των πολλων ινα σωθωσιν