< תְהִלִּים 86 >
תְּפִלָּ֗ה לְדָ֫וִ֥ד הַטֵּֽה־יְהוָ֣ה אָזְנְךָ֣ עֲנֵ֑נִי כִּֽי־עָנִ֖י וְאֶבְי֣וֹן אָֽנִי׃ | 1 |
Drottinn, líttu til mín! Hlustaðu á bæn mína! Svaraðu mér því að ég er í nauðum staddur.
שָֽׁמְרָ֣ה נַפְשִׁי֮ כִּֽי־חָסִ֪יד אָ֥נִי הוֹשַׁ֣ע עַ֭בְדְּךָ אַתָּ֣ה אֱלֹהַ֑י הַבּוֹטֵ֥חַ אֵלֶֽיךָ׃ | 2 |
Bjargaðu mér frá dauða, því að ég tilheyri þér. Frelsaðu mig, því að ég treysti þér og hlýði.
חָנֵּ֥נִי אֲדֹנָ֑י כִּ֥י אֵלֶ֥יךָ אֶ֝קְרָ֗א כָּל־הַיּֽוֹם׃ | 3 |
Miskunna mér, Drottinn. Ég mæni til þín og vona á þig liðlangan daginn.
שַׂ֭מֵּחַ נֶ֣פֶשׁ עַבְדֶּ֑ךָ כִּ֥י אֵלֶ֥יךָ אֲ֝דֹנָ֗י נַפְשִׁ֥י אֶשָּֽׂא׃ | 4 |
Drottinn, leyfðu mér að gleðjast því að ég tilbið þig einan.
כִּֽי־אַתָּ֣ה אֲ֭דֹנָי ט֣וֹב וְסַלָּ֑ח וְרַב־חֶ֝֗סֶד לְכָל־קֹרְאֶֽיךָ׃ | 5 |
Drottinn, þú ert mildur og góður og fús að fyrirgefa, gæskuríkur við alla sem ákalla þig.
הַאֲזִ֣ינָה יְ֭הוָה תְּפִלָּתִ֑י וְ֝הַקְשִׁ֗יבָה בְּק֣וֹל תַּחֲנוּנוֹתָֽי׃ | 6 |
Heyr þú bæn mína Drottinn, því að ég ákalla þig í neyð minni.
בְּי֣וֹם צָ֭רָתִ֥י אֶקְרָאֶ֗ךָּ כִּ֣י תַעֲנֵֽנִי׃ | 7 |
Þegar ég er í vanda staddur hrópa ég til þín því að þú hjálpar mér.
אֵין־כָּמ֖וֹךָ בָאֱלֹהִ֥ים ׀ אֲדֹנָ֗י וְאֵ֣ין כְּֽמַעֲשֶֽׂיךָ׃ | 8 |
Enginn hinna heiðnu guða stenst samjöfnuð við þig! Þín verk eru engu lík!
כָּל־גּוֹיִ֤ם ׀ אֲשֶׁ֥ר עָשִׂ֗יתָ יָב֤וֹאוּ ׀ וְיִשְׁתַּחֲו֣וּ לְפָנֶ֣יךָ אֲדֹנָ֑י וִֽיכַבְּד֣וּ לִשְׁמֶֽךָ׃ | 9 |
Þjóðirnar – þú skapaðir þær allar – munu koma og lúta þér. Þær munu lofa þitt háa og heilaga nafn
כִּֽי־גָד֣וֹל אַ֭תָּה וְעֹשֵׂ֣ה נִפְלָא֑וֹת אַתָּ֖ה אֱלֹהִ֣ים לְבַדֶּֽךָ׃ | 10 |
því að þú ert mikill og gerir furðuverk. Þú einn ert Guð!
ה֘וֹרֵ֤נִי יְהוָ֨ה ׀ דַּרְכֶּ֗ךָ אֲהַלֵּ֥ךְ בַּאֲמִתֶּ֑ךָ יַחֵ֥ד לְ֝בָבִ֗י לְיִרְאָ֥ה שְׁמֶֽךָ׃ | 11 |
Sýndu mér, Drottinn, hvert þú vilt senda mig og þangað mun ég fara, því það er vegur sannleikans. Ó, að ég gæti tignað þig af heilu hjarta og hreinni samvisku!
אוֹדְךָ֤ ׀ אֲדֹנָ֣י אֱ֭לֹהַי בְּכָל־לְבָבִ֑י וַאֲכַבְּדָ֖ה שִׁמְךָ֣ לְעוֹלָֽם׃ | 12 |
Ég lofa þig Drottinn Guð minn af öllu hjarta. Ég vil vegsama nafn þitt að eilífu.
כִּֽי־חַ֭סְדְּךָ גָּד֣וֹל עָלָ֑י וְהִצַּ֥לְתָּ נַ֝פְשִׁ֗י מִשְּׁא֥וֹל תַּחְתִּיָּֽה׃ (Sheol ) | 13 |
Mikill er kærleikur þinn! Þú ert mér alltaf svo góður! Þú frelsaðir mig úr djúpi heljar. (Sheol )
אֱלֹהִ֤ים ׀ זֵ֘דִ֤ים קָֽמוּ־עָלַ֗י וַעֲדַ֣ת עָ֭רִיצִים בִּקְשׁ֣וּ נַפְשִׁ֑י וְלֹ֖א שָׂמ֣וּךָ לְנֶגְדָּֽם׃ | 14 |
Ofstopamenn rísa gegn mér. Guðlaus illmenni vilja ryðja mér burt.
וְאַתָּ֣ה אֲ֭דֹנָי אֵל־רַח֣וּם וְחַנּ֑וּן אֶ֥רֶךְ אַ֝פַּ֗יִם וְרַב־חֶ֥סֶד וֶאֱמֶֽת׃ | 15 |
En þú, Drottinn, ert miskunnsamur Guð, seinn til reiði, langlyndur og trúr.
פְּנֵ֥ה אֵלַ֗י וְחָ֫נֵּ֥נִי תְּנָֽה־עֻזְּךָ֥ לְעַבְדֶּ֑ךָ וְ֝הוֹשִׁ֗יעָה לְבֶן־אֲמָתֶֽךָ׃ | 16 |
Líttu til mín í náð og styrktu mig. Ég er þjónn þinn, frelsaðu mig.
עֲשֵֽׂה־עִמִּ֥י א֗וֹת לְט֫וֹבָ֥ה וְיִרְא֣וּ שֹׂנְאַ֣י וְיֵבֹ֑שׁוּ כִּֽי־אַתָּ֥ה יְ֝הוָ֗ה עֲזַרְתַּ֥נִי וְנִחַמְתָּֽנִי׃ | 17 |
Gefðu mér tákn um að þú elskir mig. Þegar óvinir mínir sjá það, munu þeir blygðast sín því að þú hjálpar mér og huggar mig.