< 2 Korint 13 >
1 M'ap vin lakay nou pou yon twazyèm fwa. Lè sa a, jan sa ekri nan Liv la, tout bagay va regle sou depozisyon de osinon twa temwen.
Þetta er nú í þriðja sinn sem ég kem til ykkar. Biblían segir að hafi tveir eða þrír orðið vitni að rangindum, þá beri að refsa. Nú þegar ég kem vara ég ykkur við í þriðja sinn.
2 M'ap avèti nou tout ki te fè peche anvan sa, ansanm ak tout lòt yo. Mwen te deja di nou sa lè m' te vin lakay nou dezyèm fwa a. Koulye a mwen pa la, m'ap repete l' ankò: pwochenn fwa m'ap tounen lakay nou, mwen p'ap mennaje pesonn.
Ég hef þegar varað þá við sem syndguðu, það gerði ég síðast þegar ég var hjá ykkur. Nú vara ég þá aftur við og alla hina eins og ég gerði þá. Ég segi ykkur hér með að þegar ég kem þá verð ég undir það búinn að refsa þeim harðlega og án undanbragða.
3 Nou bezwen prèv se Kris la k'ap pale lè m'ap pale, enben n'a jwenn li. Kris la pa fèb non lè l'ap regle ak nou. Okontrè, l'ap fè nou wè pouvwa li.
Ef þið viljið, þá mun ég sanna á fullnægjandi hátt að ég tala fyrir munn Krists. Kristur er ekki máttlaus þegar hann fer höndum um ykkur, nei, hann er sterkt afl hið innra með ykkur.
4 Wi, se vre: yo te kloure l' sou yon kwa paske li te fèb. Men koulye a, li vivan gremesi pouvwa Bondye a. Mwen menm tou, mwen fèb ansanm ak Kris la. Men, lè m'ap regle avèk nou, mwen vivan ansanm avè l' tou, gremesi pouvwa Bondye a.
Vanmegna, kvalinn og hrjáður dó hann á krossinum, en nú lifir hann fyrir kraft Guðs. Eins og hann var, erum við líkamlega veikburða, en lifum þó eins og hann í styrkleika. Við höfum aðgang að krafti Guðs og þann kraft munum við nota ykkar á meðal.
5 Sonde tèt nou nou menm, egzaminen konsyans nou byen pou wè si n'ap viv ak konfyans nan Bondye. Nou fèt pou nou rekonèt si Jezikri nan kè nou, esepte si nou pa ta kapab bay prèv nou gen konfyans nan Bondye.
Prófið ykkur sjálf. Eruð þið trúuð þegar allt kemur til alls? Munuð þið standast prófið? Finnið þið fyrir nálægð Krists? Vex máttur hans í ykkur? Eða eruð þið kannski aðeins kristin að nafninu til?
6 Men, mwen kwè n'a rekonèt sa tou: mwen menm, mwen kapab bay prèv mwen gen konfyans nan Bondye.
Ég vona að þið séuð mér sammála um að ég hafi staðist prófið og tilheyri Drottni, svo ekki verði um villst.
7 M'ap lapriyè Bondye pou nou pa fè anyen ki mal. Lè m' fè sa, mwen pa fè l' nan lide pou m' moutre sa m' kapab fè. Men, mwen ta renmen wè nou fè sa ki byen, menm si mwen pase pou moun ki pa kapab fè anyen.
Ég bið til Guðs að þið lifið sómasamlegu lífi, en ekki til þess að þið verðið skrautfjöður í hatt okkar, sem sanni kenningu okkar. Við viljum að þið gerið það sem rétt er og jafnvel þótt við sjálfir verðum fyrirlitnir.
8 Nou pa ka fè anyen ki kont verite Bondye a, se pou li ase nou ka travay.
Okkar hlutverk er að hvetja ávallt til þess sem rétt er, því hvernig færi fyrir okkur ef við ættum að standa gegn sannleikanum?
9 Mwen kontan nèt lè mwen menm mwen fèb, epi nou menm nou gen fòs. Se sak fè, m'ap mande nan lapriyè m' pou nou vin bon nèt sou tout pwen.
Við gleðjumst þótt við séum veikburða, bara ef þið verðið styrk. Okkar hjartans bæn og þrá er að þið verðið fullþroska í trúnni.
10 M'ap ekri nou konsa lè mwen lwen nou, se pou lè m' rive lakay nou, mwen pa bezwen aji sevè avèk nou. Otorite Seyè a ban mwen an, se pa pou detwi nou non li ban mwen li. Men, se pou fè nou grandi nan konfyans nou gen nan Kris la.
Þetta skrifa ég í þeirri von að ég þurfi ekki að ávíta ykkur eða refsa, þegar ég kem, því að ekki langar mig til að nota það vald sem Drottinn hefur gefið mér til að refsa, heldur það vald sem ætlað er til uppbyggingar hinum trúuðu.
11 Koulye a, frè m' yo, mwen kite nou. Chache pou nou vin bon nèt sou tout pwen. Se pou nou yonn ankouraje lòt, mete nou dakò yonn ak lòt, viv ak kè poze. Bondye ki bay renmen ak kè poze a, va toujou avè nou.
Ég lýk bréfi mínu með þessum orðum: Verið glöð og vaxið í Kristi. Farið eftir orðum mínum og lifið í sátt og samlyndi. Friður Guðs og kærleikur sé með ykkur.
12 Se pou nou yonn bo lòt tankou moun k'ap viv pou Bondye.
Heilsið hvert öðru með hlýju og kærleika Drottins.
13 Tout frè k'ap viv apa pou Bondye yo voye bonjou pou nou.
Trúsystkini ykkar hér senda sínar bestu kveðjur.
14 Se pou benediksyon Seyè Jezikri ban nou an, ak renmen Bondye gen pou nou an, ansanm ak pouvwa Sentespri k'ap fè nou viv ansanm lan toujou la ak nou tout.
Friður Drottins Jesú Krists, kærleikur Guðs og samfélag heilags anda eflist ykkar á meðal. Páll