< Προς Γαλατας 5 >

1 τη ελευθερια ουν η χριστος ημας ηλευθερωσεν στηκετε και μη παλιν ζυγω δουλειας ενεχεσθε
Kristur frelsaði okkur til þess að við skyldum lifa í frelsi. Verið því staðföst og látið ekki aftur leggja á ykkur þrældómsfjötra, sem binda ykkur föst við lög og siðvenjur Gyðinga.
2 ιδε εγω παυλος λεγω υμιν οτι εαν περιτεμνησθε χριστος υμας ουδεν ωφελησει
Takið eftir, því þetta er mikilvægt: Ef þið ætlið að verða réttlát í augum Guðs með því að láta umskerast og hlýða lögum Gyðinga, þá getur Kristur ekki frelsað ykkur.
3 μαρτυρομαι δε παλιν παντι ανθρωπω περιτεμνομενω οτι οφειλετης εστιν ολον τον νομον ποιησαι
Ég endurtek: Hver sá sem reynir að þóknast Guði með því að láta umskerast, verður upp frá því að hlýða öllum lögum Gyðinga eða glatast ella.
4 κατηργηθητε απο του χριστου οιτινες εν νομω δικαιουσθε της χαριτος εξεπεσατε
Kristur er ykkur gagnslaus, ef þið haldið að þið getið greitt skuld ykkar við Guð með því að halda þessi lög – og þar með hafið þið misst af náð Guðs.
5 ημεις γαρ πνευματι εκ πιστεως ελπιδα δικαιοσυνης απεκδεχομεθα
En með hjálp heilags anda, trúum við því hins vegar að Kristur hafi dáið til að hreinsa burt syndir okkar og að hann komi öllu í lag milli okkar og Guðs.
6 εν γαρ χριστω ιησου ουτε περιτομη τι ισχυει ουτε ακροβυστια αλλα πιστις δι αγαπης ενεργουμενη
Við, sem höfum eignast eilíft líf hjá Kristi, þurfum hvorki að hafa áhyggjur af því hvort við séum umskorin eða ekki, né hvort við förum eftir siðum Gyðinga eða ekki – allt sem við þörfnumst er trú sem starfar í kærleika.
7 ετρεχετε καλως τις υμας ανεκοψεν τη αληθεια μη πειθεσθαι
Þið byrjuðuð vel, en hver truflaði ykkur eða hindraði í að fylgja sannleikanum?
8 η πεισμονη ουκ εκ του καλουντος υμας
Áreiðanlega ekki Guð, því að það var hann sem kallaði ykkur til frelsis í Kristi.
9 μικρα ζυμη ολον το φυραμα ζυμοι
Ef eitt ykkar er vegvillt, þá nægir það til að villa um fyrir öllum hinum.
10 εγω πεποιθα εις υμας εν κυριω οτι ουδεν αλλο φρονησετε ο δε ταρασσων υμας βαστασει το κριμα οστις αν η
Ég treysti því að Drottinn muni aftur koma ykkur á sömu skoðun og þá sem ég hef á þessum hlutum. Guð mun hafa afskipti af manninum sem truflaði ykkur og olli ruglingnum.
11 εγω δε αδελφοι ει περιτομην ετι κηρυσσω τι ετι διωκομαι αρα κατηργηται το σκανδαλον του σταυρου
Sumir segja, að ég prediki sjálfur að umskurn og hlýðni við lög Gyðinga séu nauðsynlegir þættir í hjálpræðinu. Þá væri ég ekki lengur ofsóttur – því að slíkur boðskapur hneykslar engan. Sú staðreynd, að ég er alltaf ofsóttur, sannar hins vegar að ég predika enn að hjálpræðið fáist einungis fyrir trú á það verk sem Kristur vann á krossinum.
12 οφελον και αποκοψονται οι αναστατουντες υμας
Ég óska þess eins að þessir fræðimenn sem vilja umskera ykkur, skeri þess í stað á allt samband sitt við ykkur og láti ykkur í friði.
13 υμεις γαρ επ ελευθερια εκληθητε αδελφοι μονον μη την ελευθεριαν εις αφορμην τη σαρκι αλλα δια της αγαπης δουλευετε αλληλοις
Kæru vinir, þið hafið öðlast frelsi – ekki til að gera það sem rangt er, heldur til að elska og þjóna hvert öðru.
14 ο γαρ πας νομος εν ενι λογω πληρουται εν τω αγαπησεις τον πλησιον σου ως εαυτον
Öll lög Gyðinga má draga saman í eitt boðorð: Elskaðu aðra eins og sjálfan þig.
15 ει δε αλληλους δακνετε και κατεσθιετε βλεπετε μη υπο αλληλων αναλωθητε
Ef þið eruð sífellt að finna að og kvarta, í stað þess að sýna hvert öðru kærleika, þá gætið ykkar! Varið ykkur á að spilla ekki hvert fyrir öðru.
16 λεγω δε πνευματι περιπατειτε και επιθυμιαν σαρκος ου μη τελεσητε
Ég hvet ykkur til að hlýða aðeins því sem heilagur andi segir ykkur. Hann mun segja ykkur hvert þið eigið að fara og hvað þið eigið að gera, og þá munuð þið ekki lengur hlýðnast sjálfselskunni.
17 η γαρ σαρξ επιθυμει κατα του πνευματος το δε πνευμα κατα της σαρκος ταυτα δε αντικειται αλληλοις ινα μη α αν θελητε ταυτα ποιητε
Það er í eðli okkar að gera hið illa, einmitt það sem heilagur andi segir okkur að láta ógert. Sama er að segja um hið góða sem heilagur andi kemur til leiðar, þegar hann fær rúm í lífi okkar, það stendur í gegn okkar illa eðli. Þessi tvö öfl innra með okkur eiga í stöðugri baráttu um yfirráð yfir okkur og þau munu aldrei láta okkur afskiptalaus.
18 ει δε πνευματι αγεσθε ουκ εστε υπο νομον
Þegar þið látið leiðast af heilögum anda, þá þurfið þið ekki lengur að þvinga ykkur til hlýðni við lög Gyðinga.
19 φανερα δε εστιν τα εργα της σαρκος ατινα εστιν μοιχεια πορνεια ακαθαρσια ασελγεια
En ef þið hins vegar látið eigingirnina leiða ykkur, þá verður afleiðingin þessi í lífi ykkar: Óhreinar hugsanir, löngun í siðlausar nautnir,
20 ειδωλολατρεια φαρμακεια εχθραι ερεις ζηλοι θυμοι εριθειαι διχοστασιαι αιρεσεις
hjáguðadýrkun, andakukl, fjandskapur og deilur, afbrýðisemi, reiði, eigingirni, sundrung og flokkadrættir. Rangkenningar munu koma fram,
21 φθονοι φονοι μεθαι κωμοι και τα ομοια τουτοις α προλεγω υμιν καθως και προειπον οτι οι τα τοιαυτα πρασσοντες βασιλειαν θεου ου κληρονομησουσιν
öfund, drykkjuskapur, svall og fleira í þeim dúr. Og enn einu sinni segi ég ykkur, eins og ég hef oft sagt áður, að sá sem lifir slíku lífi mun ekki erfa guðsríki.
22 ο δε καρπος του πνευματος εστιν αγαπη χαρα ειρηνη μακροθυμια χρηστοτης αγαθωσυνη πιστις
Ef hins vegar heilagur andi stjórnar lífi okkar, þá skapar hann eftirfarandi ávexti í okkur: Kærleika, gleði, frið, þolinmæði, gæsku, góðvild, trúmennsku,
23 πραοτης εγκρατεια κατα των τοιουτων ουκ εστιν νομος
hógværð, sjálfsstjórn og bindindi, – ekkert af þessu er í andstöðu við lög Gyðinga.
24 οι δε του χριστου την σαρκα εσταυρωσαν συν τοις παθημασιν και ταις επιθυμιαις
Þeir sem tilheyra Kristi, hafa krossfest hinar illu og holdlegu hvatir sínar á krossi hans.
25 ει ζωμεν πνευματι πνευματι και στοιχωμεν
Ef við lifum í krafti heilags anda, þá fylgjum við einnig leiðsögn hans í einu og öllu.
26 μη γινωμεθα κενοδοξοι αλληλους προκαλουμενοι αλληλοις φθονουντες
Þá þurfum við ekki að keppa eftir heiðri og vinsældum, því slík samkeppni vekur aðeins afbrýðisemi og fjandskap.

< Προς Γαλατας 5 >