< Προς Ρωμαιους 15 >
1 οφειλομεν δε ημεις οι δυνατοι τα ασθενηματα των αδυνατων βασταζειν και μη εαυτοις αρεσκειν
Þótt við álítum að Drottni sé sama hvort við gerum það sem ég var að tala um eða látum það ógert, þá getum við samt ekki haldið því áfram til að þóknast sjálfum okkur, því að við verðum að bera þá „byrði“að taka tillit til viðhorfa þeirra, sem álíta að rangt sé að snerta þessa hluti.
2 εκαστος ημων τω πλησιον αρεσκετω εις το αγαθον προς οικοδομην
Við ættum því að þóknast hinum en ekki sjálfum okkur og gera það sem þeim er fyrir bestu og efla þá þannig í Drottni.
3 και γαρ ο χριστος ουχ εαυτω ηρεσεν αλλα καθως γεγραπται οι ονειδισμοι των ονειδιζοντων σε επεπεσον επ εμε
Kristur reyndi aldrei að þóknast sjálfum sér. Um það segir í Davíðssálmi: „Hann kom til að þjást og þola fyrirlitningu andstæðinga Drottins.“
4 οσα γαρ προεγραφη εις την ημετεραν διδασκαλιαν προεγραφη ινα δια της υπομονης και της παρακλησεως των γραφων την ελπιδα εχωμεν
Þessi orð Gamla testamentisins voru skrifuð fyrir löngu og eiga að kenna okkur þolinmæði og vera til uppörvunar, svo að við getum horft full eftirvæntingar fram til þess tíma er Guð hefur sigrað synd og dauða að fullu.
5 ο δε θεος της υπομονης και της παρακλησεως δωη υμιν το αυτο φρονειν εν αλληλοις κατα χριστον ιησουν
Guð, sem uppörvar og eykur þolinmæði og staðfestu, hann hjálpi ykkur til að vera samhuga svo að þið getið umgengist hvert annað með hugarfari Krists.
6 ινα ομοθυμαδον εν ενι στοματι δοξαζητε τον θεον και πατερα του κυριου ημων ιησου χριστου
Þá munuð þið getað lofað Drottin einum rómi og gefið Guði föður og Drottni Jesú Kristi dýrðina.
7 διο προσλαμβανεσθε αλληλους καθως και ο χριστος προσελαβετο υμας εις δοξαν θεου
Takið því hvert annað að ykkur, eins og Kristur tók ykkur að sér, því að slíkt er Guði að skapi.
8 λεγω δε χριστον ιησουν διακονον γεγενησθαι περιτομης υπερ αληθειας θεου εις το βεβαιωσαι τας επαγγελιας των πατερων
Munið að Jesús Kristur kom til að hjálpa Gyðingunum og sanna að Guð stendur við loforðin sem hann gaf þeim.
9 τα δε εθνη υπερ ελεους δοξασαι τον θεον καθως γεγραπται δια τουτο εξομολογησομαι σοι εν εθνεσιν κυριε και τω ονοματι σου ψαλω
Munið og að hann kom einnig til þess að heiðingjarnir gætu frelsast og vegsamað Guð fyrir miskunnina sem hann auðsýndi þeim. Þessu lýsti sálmaskáldið svo: „Ég mun vegsama þig meðal heiðingjanna og lofsyngja nafn þitt.“
10 και παλιν λεγει ευφρανθητε εθνη μετα του λαου αυτου
Á öðrum stað stendur: „Fagnið þið heiðingjar ásamt þjóð hans, Ísrael.“
11 και παλιν αινειτε τον κυριον παντα τα εθνη και επαινεσατε αυτον παντες οι λαοι
Og enn segir hann: „Lofið Drottin allar þjóðir og vegsamið hann allir lýðir!“
12 και παλιν ησαιας λεγει εσται η ριζα του ιεσσαι και ο ανισταμενος αρχειν εθνων επ αυτω εθνη ελπιουσιν
Jesaja spámaður lýsti þessu svo: „Sá mun fæðast af ætt Ísaí sem verða mun konungur allra þjóða og honum einum munu þeir treysta.“
13 ο δε θεος της ελπιδος πληρωσαι υμας πασης χαρας και ειρηνης εν τω πιστευειν εις το περισσευειν υμας εν τη ελπιδι εν δυναμει πνευματος αγιου
Með þetta í huga bið ég fyrir ykkur, heiðingjunum, að Guð vonarinnar fylli ykkur fögnuði og friði trúarinnar, svo að von ykkar styrkist æ meira í krafti heilags anda.
14 πεπεισμαι δε αδελφοι μου και αυτος εγω περι υμων οτι και αυτοι μεστοι εστε αγαθωσυνης πεπληρωμενοι πασης γνωσεως δυναμενοι και αλληλους νουθετειν
Ég veit, vinir mínir, að þið eruð skynsamir og kærleiksríkir og þess vegna skiljið þið þetta vel og eruð færir um að uppfræða hver annan.
15 τολμηροτερον δε εγραψα υμιν αδελφοι απο μερους ως επαναμιμνησκων υμας δια την χαριν την δοθεισαν μοι υπο του θεου
Samt sem áður áræddi ég að leggja áherslu á sum þessara atriða, því að ég vissi að þið þörfnuðust einmitt þessara áminninga minna. Guð hefur nefnilega veitt mér þá náð að vera sérlegur sendiboði Jesú Krists til ykkar, sem ekki eruð Gyðingar. Ég flyt fagnaðarerindið og ber ykkur síðan fram fyrir Guð sem fórn, honum velþóknanlega, því að þið eruð orðin hrein og honum að skapi, fyrir áhrif heilags anda.
16 εις το ειναι με λειτουργον ιησου χριστου εις τα εθνη ιερουργουντα το ευαγγελιον του θεου ινα γενηται η προσφορα των εθνων ευπροσδεκτος ηγιασμενη εν πνευματι αγιω
17 εχω ουν καυχησιν εν χριστω ιησου τα προς τον θεον
Mér er því heimilt að vera dálítið hróðugur af öllu því sem Kristur Jesús hefur notað mig til að gera.
18 ου γαρ τολμησω λαλειν τι ων ου κατειργασατο χριστος δι εμου εις υπακοην εθνων λογω και εργω
Ég dirfist ekki að dæma um með hve miklum árangri hann hefur notað aðra en eitt veit ég: Hann hefur notað mig til að leiða heiðingjana til Guðs.
19 εν δυναμει σημειων και τερατων εν δυναμει πνευματος θεου ωστε με απο ιερουσαλημ και κυκλω μεχρι του ιλλυρικου πεπληρωκεναι το ευαγγελιον του χριστου
Ég hef unnið þá með boðskap mínum og líferni, sem þeir hafa veitt eftirtekt, með kraftaverkum sem Guð hefur látið mig gera, en þau eru tákn frá honum og allt er þetta fyrir kraft heilags anda. Þannig hef ég predikað allan fagnaðarboðskap Krists, allt frá Jerúsalem og sem leið liggur til Illyríu.
20 ουτως δε φιλοτιμουμενον ευαγγελιζεσθαι ουχ οπου ωνομασθη χριστος ινα μη επ αλλοτριον θεμελιον οικοδομω
En allan þennan tíma hef ég þráð að komast enn lengra og predika þar sem nafn Krists hefur ekki enn heyrst, fremur en á stöðum þar sem aðrir hafa þegar stofnað söfnuði.
21 αλλα καθως γεγραπται οις ουκ ανηγγελη περι αυτου οψονται και οι ουκ ακηκοασιν συνησουσιν
Ég hugfesti orð Jesaja, en hann segir að þeir sem aldrei hafi heyrt nafn Krists, muni sjá og skilja,
22 διο και ενεκοπτομην τα πολλα του ελθειν προς υμας
og það er reyndar ástæða þess hve ég hef þráð að koma til ykkar.
23 νυνι δε μηκετι τοπον εχων εν τοις κλιμασιν τουτοις επιποθιαν δε εχων του ελθειν προς υμας απο πολλων ετων
Nú er ég loks tilbúinn að koma eftir öll þessi ár, því verki mínu hér er lokið.
24 ως εαν πορευωμαι εις την σπανιαν ελευσομαι προς υμας ελπιζω γαρ διαπορευομενος θεασασθαι υμας και υφ υμων προπεμφθηναι εκει εαν υμων πρωτον απο μερους εμπλησθω
Nú er ég að ráðgera ferð til Spánar og þegar að henni kemur, mun ég koma við hjá ykkur í Róm. Þegar við höfum notið þess að vera saman um stund, getið þið fylgt mér á leið.
25 νυνι δε πορευομαι εις ιερουσαλημ διακονων τοις αγιοις
En áður en ég kem, verð ég fyrst að fara til Jerúsalem með gjöf til Gyðinganna, sem þar eru kristnir.
26 ευδοκησαν γαρ μακεδονια και αχαια κοινωνιαν τινα ποιησασθαι εις τους πτωχους των αγιων των εν ιερουσαλημ
Söfnuðirnir í Makedóníu og Akkeu hafa safnað fé handa þeim í Jerúsalem, því að þeir hafa þolað mikla erfiðleika.
27 ευδοκησαν γαρ και οφειλεται αυτων εισιν ει γαρ τοις πνευματικοις αυτων εκοινωνησαν τα εθνη οφειλουσιν και εν τοις σαρκικοις λειτουργησαι αυτοις
Þetta gerðu þeir með glöðu geði, því þeim finnst þeir vera í mikilli skuld við kristna söfnuðinn í Jerúsalem. Hvers vegna? Vegna þess að fréttirnar um Krist bárust þessum heiðingjum frá kirkjunni í Jerúsalem. Og fyrst þessi mikla gjöf, gleðiboðskapurinn, hefur borist þeim þaðan, þá finnst þeim ekki nema sjálfsagt að veita fjárhagslega aðstoð.
28 τουτο ουν επιτελεσας και σφραγισαμενος αυτοις τον καρπον τουτον απελευσομαι δι υμων εις την σπανιαν
Þegar ég hef afhent þeim peningana og þar með komið góðverki þeirra í höfn, mun ég koma við hjá ykkur á leiðinni til Spánar.
29 οιδα δε οτι ερχομενος προς υμας εν πληρωματι ευλογιας του ευαγγελιου του χριστου ελευσομαι
Ég er viss um að þegar ég kem, mun Drottinn nota mig til að veita ykkur ríkulega blessun.
30 παρακαλω δε υμας αδελφοι δια του κυριου ημων ιησου χριστου και δια της αγαπης του πνευματος συναγωνισασθαι μοι εν ταις προσευχαις υπερ εμου προς τον θεον
Kæru vinir, ég bið þess að þið berjist með mér í bæn til Guðs, fyrir mér og starfi mínu vegna Drottins Jesú Krists, og kærleika heilags anda.
31 ινα ρυσθω απο των απειθουντων εν τη ιουδαια και ινα η διακονια μου η εις ιερουσαλημ ευπροσδεκτος γενηται τοις αγιοις
Biðjið Guð að hann varðveiti mig fyrir andstæðingum Krists í Jerúsalem. Biðjið þess einnig að hinir kristnu þar taki fúslega við peningunum sem ég færi þeim,
32 ινα εν χαρα ελθω προς υμας δια θεληματος θεου και συναναπαυσωμαι υμιν
og að ég síðan, ef Guð lofar, geti komið til ykkar glaður í anda og við uppörvast sameiginlega.
33 ο δε θεος της ειρηνης μετα παντων υμων αμην
Guð friðarins sé með ykkur öllum. Amen.