< 1 Pierre 3 >
1 Femmes, soyez de même soumises à vos maris, afin que, si quelques-uns n’obéissent point à la parole, ils soient gagnés sans parole par la conduite de leurs femmes,
Eiginkonur, hlýðið eiginmönnum ykkar. Það skuluð þið gera, jafnvel þótt þeir láti sér fátt um finnast þegar þið segið þeim frá Drottni,
2 en voyant votre manière de vivre chaste et réservée.
því að síðar meir kunna þeir að ávinnast vegna vandaðs lífernis ykkar.
3 Ayez, non cette parure extérieure qui consiste dans les cheveux tressés, les ornements d’or, ou les habits qu’on revêt,
Hugsið ekki of mikið um skartgripi, hárgreiðslu og glæsileg föt.
4 mais la parure intérieure et cachée dans le cœur, la pureté incorruptible d’un esprit doux et paisible, qui est d’un grand prix devant Dieu.
Fegurð ykkar á að vera innri fegurð hjartans, en hún birtist í hógværri og blíðri lund, sem er dýrmæt í augum Guðs.
5 Ainsi se paraient autrefois les saintes femmes qui espéraient en Dieu, soumises à leurs maris,
Það var slík fegurð sem einkenndi heilagar konur fyrri alda. Þær treystu Guði og hlýddu eiginmönnum sínum.
6 comme Sara, qui obéissait à Abraham et l’appelait son seigneur. C’est d’elle que vous êtes devenues les filles, en faisant ce qui est bien, sans vous laisser troubler par aucune crainte.
Sara er dæmi um slíka konu. Hún hlýddi eiginmanni sínum Abraham og bar virðingu fyrir honum sem húsbónda heimilisins. Ef þið farið eins að, fetið þið í fótspor hennar eins og þið væruð dætur hennar og gerið það sem rétt er. Þá eigið þið ekki á hættu að reita menn ykkar til reiði.
7 Maris, montrez à votre tour de la sagesse dans vos rapports avec vos femmes, comme avec un sexe plus faible; honorez-les, comme devant aussi hériter avec vous de la grâce de la vie. Qu’il en soit ainsi, afin que rien ne vienne faire obstacle à vos prières.
Eiginmenn, hugsið vel um konur ykkar! Sjáið þeim fyrir þörfum þeirra og berið virðingu fyrir þeim sem hinu veikara kyni. Munið að þið og konur ykkar meðtakið sameiginlega blessun Guðs. Ef þið komið fram við þær öðruvísi en ykkur ber, er hætt við að bænir ykkar beri engan árangur.
8 Enfin, soyez tous animés des mêmes pensées et des mêmes sentiments, pleins d’amour fraternel, de compassion, d’humilité.
Hér eru svo nokkur orð til ykkar allra: Verið sem ein stór og hamingjusöm fjölskylda. Sýnið hvert öðru fyllstu tillitssemi, elskið hvert annað af öllu hjarta og verið auðmjúk.
9 Ne rendez point mal pour mal, ou injure pour injure; bénissez, au contraire, car c’est à cela que vous avez été appelés, afin d’hériter la bénédiction.
Gjaldið ekki illt fyrir illt. Svarið ekki í sömu mynt, ef hreytt er í ykkur ónotum, biðjið heldur Guð að hjálpa þeim sem í hlut á, því að við eigum að vera góð við aðra og þá mun Guð blessa okkur.
10 Si quelqu’un, en effet, veut aimer la vie Et voir des jours heureux, Qu’il préserve sa langue du mal Et ses lèvres des paroles trompeuses,
Gætið tungu ykkar, ef þið viljið lifa hamingjusömu og góðu lífi, og forðist öll ósannindi.
11 Qu’il s’éloigne du mal et fasse le bien, Qu’il recherche la paix et la poursuive;
Forðist hið illa, en leggið stund á hið góða. Ástundið frið og kappkostið að varðveita hann, svo að þið missið ekki af honum!
12 Car les yeux du Seigneur sont sur les justes Et ses oreilles sont attentives à leur prière, Mais la face du Seigneur est contre ceux qui font le mal.
Drottinn verndar börnin sín og hlustar á bænir þeirra, en hann snýr augliti sínu frá þeim sem illt gera.
13 Et qui vous maltraitera, si vous êtes zélés pour le bien?
Hver mun gera ykkur illt, ef þið leggið ykkur fram um að gera gott?
14 D’ailleurs, quand vous souffririez pour la justice, vous seriez heureux. N’ayez d’eux aucune crainte, et ne soyez pas troublés;
Jafnvel þótt ykkur sé gert illt eruð þið gæfusöm, því að Guð mun launa ykkur.
15 Mais sanctifiez dans vos cœurs Christ le Seigneur, étant toujours prêts à vous défendre, avec douceur et respect, devant quiconque vous demande raison de l’espérance qui est en vous,
Takið öllu með ró og stillingu og treystið Drottni, Jesú Kristi. Ef einhver spyr ykkur hvers vegna þið gerið það, verið þá reiðubúin að svara með hógværð og sýnið virðingu þeim sem spyr.
16 et ayant une bonne conscience, afin que, là même où ils vous calomnient comme si vous étiez des malfaiteurs, ceux qui décrient votre bonne conduite en Christ soient couverts de confusion.
Gerið það sem rétt er, en tali menn illa um ykkur þrátt fyrir það og kalli ykkur illum nöfnum, þá verða þeir aðeins sjálfum sér til minnkunar fyrir slíkt, því að þið hafið ekkert rangt aðhafst.
17 Car il vaut mieux souffrir, si telle est la volonté de Dieu, en faisant le bien qu’en faisant le mal.
Munið að ætli Guð ykkur að þjást, er betra að líða fyrir að hafa gert rétt, heldur en rangt!
18 Christ aussi a souffert une fois pour les péchés, lui juste pour des injustes, afin de nous amener à Dieu, ayant été mis à mort quant à la chair, mais ayant été rendu vivant quant à l’Esprit,
Kristur varð einnig að þjást. Hann dó eitt sinn fyrir syndir okkar allra. Sjálfur var hann algjörlega saklaus og hafði aldrei drýgt neina synd, en hann dó eigi að síður fyrir okkur, seka syndarana, svo að hann gæti leitt okkur heilu og höldnu heim til Guðs. Líkami Jesú dó, en andi hans lifði áfram.
19 dans lequel aussi il est allé prêcher aux esprits en prison,
Þannig fór hann til andanna sem voru í varðhaldi, og predikaði fyrir þeim.
20 qui autrefois avaient été incrédules, lorsque la patience de Dieu se prolongeait, aux jours de Noé, pendant la construction de l’arche, dans laquelle un petit nombre de personnes, c’est-à-dire, huit, furent sauvées à travers l’eau.
Þetta voru andar þeirra, sem fyrir löngu – á dögum Nóa – höfðu óhlýðnast Guði, enda þótt hann biði þeirra með mikilli þolinmæði meðan Nói var að smíða örkina. Í örkinni björguðust síðan aðeins átta manns úr flóðinu hræðilega.
21 Cette eau était une figure du baptême, qui n’est pas la purification des souillures du corps, mais l’engagement d’une bonne conscience envers Dieu, et qui maintenant vous sauve, vous aussi, par la résurrection de Jésus-Christ,
Þetta er einmitt fyrirmynd skírnarinnar, sem nú frelsar ykkur. Í skírninni sýnum við fram á frelsi okkar frá dauða og dómi fyrir upprisu Krists, ekki vegna þess að við höfum þvegið af okkur óhreinindi í vatninu, heldur snúum við okkur í henni til Guðs og biðjum hann um að hreinsa hjörtu okkar af syndinni.
22 qui est à la droite de Dieu, depuis qu’il est allé au ciel, et que les anges, les autorités et les puissances, lui ont été soumis.
Nú er Kristur á himnum og situr þar í heiðurssæti við hlið Guðs föður og allir englar og kraftar himnanna lúta honum og hlýða.