< 2 Corinthians 8 >

1 But, britheren, we maken knowun to you the grace of God, that is youun in the chirchis of Macedonye,
Nú langar mig að segja ykkur frá því sem Guð hefur gert af náð sinni fyrir söfnuðina í Makedóníu.
2 that in myche asaiyng of tribulacioun, the plente of the ioye of hem was, and the hiyeste pouert of hem was plenteuouse `in to the richessis of the symplenesse of hem.
Enda þótt hinir kristnu þar hafi reynt mikla erfiðleika og þrengingar, þá hafa þeir haldið gleði sinni mitt í allri fátæktinni. Þetta hefur vakið hjá þeim mikla umhyggju fyrir þörfum annarra.
3 For Y bere witnessyng to hem, aftir miyt and aboue miyt thei weren wilful,
Þeir hafa gefið ríkulega – reyndar miklu meira en þeir höfðu efni á. Ég get staðfest hér, að þetta gerðu þeir af fúsum vilja.
4 with myche monestyng bisechynge vs the grace and the comynyng of mynystring, that is maad to hooli men.
Þeir báðu okkur fyrir þessa peninga, því að þeir vildu einnig fá að vera með í því að hjálpa hinum kristnu í Jerúsalem.
5 And not as we hopiden, but thei yauen hem silf first to the Lord, aftirward to vs bi the wille of God.
Það besta var að þetta fór langt fram úr okkar vonum, því að það fyrsta sem þeir gerðu var að fórna sér algjörlega fyrir Drottin og síðan fyrir okkur, samkvæmt vilja Guðs.
6 So that we preyeden Tite, that as he bigan, so also he performe in you this grace.
Þeir voru svo áhugasamir um þetta að nú höfum við hvatt Títus, hann sem hóf verkið, til að heimsækja ykkur og biðja ykkur að bæta við því sem á vantar í þessa kærleiksgjöf.
7 But as ye abounden in alle thingis, in feith, and word, and kunnyng, and al bisynesse, more ouer and in youre charite in to vs, that and in this grace ye abounden.
Kæru vinir, þið hafið forystu í mörgu: Þið hafið mikla trú, marga góða predikara, mikla fræðslu, mikinn áhuga og mikinn kærleika til okkar. Nú langar mig einnig til að þið hafið forystu í því að gefa, og það með gleði.
8 Y seie not as comaundinge, but bi the bisynesse of othere men appreuynge also the good wit of youre charite.
Ég er ekki að skipa fyrir. Ég er ekki að segja að þið verðið að gera þetta, heldur er ég að prófa kærleika ykkar með samanburði við dugnað annarra. Þetta gefur ykkur tækifæri til að sanna kærleika ykkar í verki og sýna að hann sé ekki aðeins orðin tóm.
9 And ye witen the grace of oure Lord Jhesu Crist, for he was maad nedi for you, whanne he was riche, that ye schulden be maad riche bi his nedynesse.
Því að þið þekkið kærleika Drottins Jesú Krists: Þótt hann væri ríkur, þá gerðist hann fátækur ykkar vegna svo að þið auðguðust af fátækt hans.
10 And Y yyue counsel in this thing; for this is profitable to you, that not oneli han bigunne to do, but also ye bigunnen to haue wille fro the formere yere.
Mig langar að leggja til að þið ljúkið því sem þið byrjuðuð á í fyrra. Reyndar var þetta ekki ykkar hugmynd, en þið voruð fyrst til að gera eitthvað í málinu.
11 But now parfourme ye in deed, that as the discrecioun of wille is redi, so be it also of parformyng of that that ye han.
Þið komuð þessu af stað og ættuð því að hafa mikinn áhuga á að koma því í höfn, með því að gefa eins og efni standa til.
12 For if the wille be redi, it is acceptid aftir that that it hath, not aftir that that it hath not.
Ef þið hafið áhuga á að gefa, þá skiptir ekki öllu máli hve mikið þið gefið. Guð vill að þið gefið af því sem þið eigið, en ekki af því sem ekki er til.
13 And not that it be remyssioun to othere men, and to you tribulacioun;
Auðvitað á ég ekki við að þeir sem fá gjafir ykkar eigi að hafa það náðugt, á ykkar kostnað, en við skulum stuðla að jöfnuði. Nú sem stendur hafið þið nóg af öllu og ættuð því að geta rétt þeim hjálparhönd.
14 but of euenesse in the present tyme youre aboundance fulfille the myseese of hem, that also the aboundaunce of hem be a fulfillynge of youre myseise, that euenesse be maad; as it is writun,
Síðar meir geta þeir svo aðstoðað ykkur á sama hátt þegar þið hafið þörf fyrir hjálp. Á þennan hátt geta báðir haft nóg.
15 He that gaderide myche, was not encresid, and he that gaderide litil, hadde not lesse.
Munið þið hvað Biblían segir um þetta? Hún segir: „Sá sem miklu safnaði, átti ekkert afgangs, en sá sem litlu safnaði, hafði nóg.“Af þessari ástæðu ættuð þið einnig að veita þeim hjálp sem hjálpar eru þurfi.
16 And Y do thankyngis to God, that yaf the same bisynesse for you in the herte of Tite,
Ég þakka Guði sem vakti hjá Títusi sömu umhyggju fyrir ykkur og hann hefur gefið mér.
17 for he resseyuede exortacioun; but whanne he was bisier, bi his wille he wente forth to you.
Samkvæmt uppástungu minni vill hann fúslega fara til ykkar á ný – ég held reyndar að hann hefði gert það hvort sem var, því að hann hefur mikinn áhuga á að hitta ykkur.
18 And we senten with hym a brother, whose preisyng is in the gospel bi alle chirchis.
Ég mun einnig senda annan vel þekktan bróður með honum. Sá maður er rómaður af öllum söfnuðunum sem góður boðberi fagnaðarerindisins.
19 And not oneli, but also he is ordeyned of chirchis the felowe of oure pilgrimage in to this grace, that is mynystrid of vs to the glorie of the Lord, and to oure ordeyned wille;
Sannleikurinn er sá að söfnuðirnir kusu hann til að verða mér samferða og fara með gjöfina til Jerúsalem. Þetta mun verða Drottni til dýrðar og jafnframt sýna löngun okkar til að hjálpa hvert öðru.
20 eschewynge this thing, that no man blame vs in this plente, that is mynystrid of vs to the glorye of the Lord.
Með því að hafa samflot, verjumst við allri tortryggni annarra. Okkur er nefnilega mjög umhugað um að enginn geti fundið neitt ámælisvert við vinnubrögð okkar varðandi þessa miklu gjöf.
21 For we purueyen good thingis, not onely bifor God, but also bifor alle men.
Guð veit að við erum heiðarlegir, en ég vil einnig að aðrir viti það og því höfum við unnið að þessu á þennan hátt.
22 For we senten with hem also oure brothir, whom we han preued in many thingis ofte, that he was bisi, but nowe myche bisier, for myche trist in you,
Ég sendi þar að auki enn einn bróður til ykkar. Af eigin reynslu vitum við að hann er einlægur maður og eftir að ég sagði honum frá löngun ykkar til að veita hjálp, þá hlakkar hann mjög til ferðarinnar.
23 ethir for Tite, that is my felowe and helpere in you, ethir for oure britheren, apostlis of the chirches of the glorie of Crist.
Ef einhver spyr hver Títus sé, segið þá að hann sé samstarfsmaður minn, sem aðstoði ykkur við að hjálpa öðrum. Auk þess getið þið sagt að hinir tveir bræðurnir séu fulltrúar kirkjunnar hér og séu báðir til fyrirmyndar í trúnni á Drottin.
24 Therfor schewe ye in to hem in the face of chirchis, that schewynge that is of youre charite and of oure glorie for you.
Sýnið þessum mönnum kærleika og látið söfnuðina sjá að það var ekki að ástæðulausu sem ég hrósaði ykkur.

< 2 Corinthians 8 >