< Jude 1 >
1 Jude, a servant of Jesus Christ, and brother of James, to the called, loved in God the Father and kept by Jesus Christ:
Frá Júdasi, þjóni Jesú Krists og bróður Jakobs. Til kristinna manna, hvar sem þeir eru, þeirra, sem Guð faðir hefur kallað og varðveitast í Jesú Kristi.
2 Mercy and peace and love be multiplied to you.
Ég bið þess að náð Guðs og friður, ásamt kærleika hans veitist ykkur í æ ríkari mæli.
3 Beloved, while giving all diligence to write to you, I found it necessary to write to you concerning the common salvation, exhorting you to contend earnestly for the faith which was once delivered to the saints.
Elsku vinir, ég hafði hugsað mér að skrifa ykkur nokkrar línur um hjálpræðið, sem Guð hefur gefið okkur, en finn nú að ég á að skrifa um annað. Ég á að hvetja ykkur til að berjast af alefli fyrir sannleikanum, sem Guð hefur gefið okkur, börnum sínum.
4 For there have stealthily crept in certain men who were of old appointed beforehand for this condemnation, ungodly men, turning the grace of our God into wantonness, and denying the only Sovereign, and our Lord Jesus Christ.
Þetta segi ég vegna þess að nokkrir menn, sem ekki þekkja Guð, hafa smeygt sér inn í ykkar hóp. Þeir segja að þegar við séum orðin kristin, getum við gert það sem okkur sýnist, án þess að þurfa að óttast dóm Guðs. Örlög slíkra manna voru ráðin þegar í byrjun, því að þeir snerust gegn leiðtoga okkar og konungi, Jesú Kristi.
5 But I wish to remind you as once knowing it all, that the Lord, having saved the people out of the land of Egypt, afterward destroyed those who believed not;
Ég vil segja við þessa menn: Gleymið ekki þeirri staðreynd – og hana þekkið þið – að Drottinn bjargaði heilli þjóð frá Egyptalandi, en síðan tortímdi hann hverjum þeim einstaklingi, meðal hennar, sem ekki treysti honum og hlýddi.
6 and the angels which kept not their principality, but left their own dwelling-place, he hath kept in everlasting chains under darkness unto the judgment of the great day; (aïdios )
Ég minni ykkur einnig á englana sem áður voru heilagir og hreinir, en steyptu sér síðan sjálfviljugir út í syndina. Nú geymir Guð þá í myrkrinu og þar bíða þeir dómsdags. (aïdios )
7 even as Sodom and Gomorrah, and the cities about them, in like manner with them giving themselves over to fornication, and going away after strange flesh, are set forth for an example, suffering the vengeance of everlasting fire. (aiōnios )
Gleymið ekki heldur borgunum Sódómu og Gómorru og nágrannabæjum þeirra. Þar ríkti siðleysi og mikil kynvilla. Þessar borgir eyðilögðust í eldi og þær munu vera okkur stöðug viðvörun um refsinguna sem bíður syndaranna. (aiōnios )
8 Yet in like manner these dreamers defile the flesh, despise dominion, and rail at dignities.
Þrátt fyrir það halda þessir falskennendur áfram. Þeir lítilsvirða líkama sína og spotta öll yfirvöld, jafnvel þau sem eru á himnum.
9 Yet Michael the archangel, when contending with the Devil he disputed about the body of Moses, dared not bring against him a railing accusation, but said: The Lord rebuke thee.
Mikael, einn voldugasti engillinn, vogaði sér ekki einu sinni að ákæra Satan né hæða hann, þegar þeir deildu um líkama Móse, hann sagði aðeins: „Drottinn refsi þér!“
10 But these rail at the things which they know not; but what things they understand naturally, as brute beasts, in these they corrupt themselves.
En þessir menn hæðast að öllu og bölva því sem þeir skilja ekki. Þeir eru eins og skepnurnar. Þeir gera allt sem þá langar til, og spilla þar með sjálfum sér.
11 Woe to them! for they have gone in the way of Cain, and rushed on in the error of Balaam for reward, and perished in the gainsaying of Korah.
Vei þessum mönnum! Þeir fylgja dæmi Kains, sem drap bróður sinn, og eins og Bíleam gera þeir allt fyrir peninga. Þeir hafa óhlýðnast Guði og fetað í fótspor Kóra, en fyrir það munu þeir deyja undir sömu bölvun og hann.
12 These are the rocks in your feasts of love, feasting together without fear, feeding only themselves; clouds without water, carried away by winds; trees in late autumn, without fruit, twice dead, plucked up by the roots;
Þessir menn eru til skammar við kærleiksmáltíðir kirkjunnar. Hlæjandi ryðjast þeir áfram og troða í sig án þess að taka tillit til annarra. Þeir eru eins og regnský sem fara yfir skrælnað land, án þess að gefa frá sér svo mikið sem eina einustu skúr. Þeir lofa öllu fögru, en standa ekki við neitt. Þeir líkjast ávaxtatré sem engan ávöxt ber. Þeir eru visnaðir, dauðir, því að þeir hafa verið rifnir upp með rótum og nú bíður þeirra ekkert nema eldurinn.
13 raging waves of the sea, foaming out their own shame; wandering stars, for whom is reserved the blackness of darkness for ever. (aiōn )
Allt, sem þeir skilja eftir, er skömm og svívirðing – eins og óhrein froða, sem öldur bera á land. Þeir reika um líkt og stjörnur á myrkum brautum himinsins. (aiōn )
14 Yea, and against these Enoch, the seventh from Adam, prophesied, saying, “Behold, the Lord cometh in the midst of his holy myriads,
Enok – en hann var uppi eftir daga Adams – sá fyrir sér þessa menn og sagði: „Sjá, Drottinn kemur, ásamt þúsundum sinna heilögu.
15 to execute judgment upon all, and to convict all the ungodly among them of all the deeds of their ungodliness which they committed; and of all the hard things which ungodly sinners spoke against him.”
Hann mun stefna til sín þjóðum heimsins og dæma þær með réttvísi. Allt hið illa, sem þær hafa gert í uppreisn sinni gegn Guði, mun hann draga fram í dagsljósið og opinbera allt sem þær hafa sagt gegn honum.“
16 These are murmurers, complaining of their lot, walking according to their own lusts; and their mouth speaketh great swelling words; admiring men's persons, for the sake of profit.
Menn þessir finna að öllu, þeir eru aldrei ánægðir og þeir gera allt illt, sem þeim kemur í hug. Þeir eru hávaðasamir gortarar, sem sýna þeim einum virðingu, sem þeir geta hagnast á.
17 But do ye, beloved, remember the words which were before spoken by the apostles of our Lord Jesus Christ;
Kæru vinir, minnist þess að postular Drottins Jesú Krists sögðu ykkur,
18 that they told you that at the last time there would be scoffers, walking according to their own ungodly lusts.
að á síðustu tímum mundu þessir spottarar koma fram og eina markmið þeirra í lífinu væri að fara leið illskunnar, til að svala eigin nautnum.
19 These are they that separate themselves, sensual, not having the Spirit.
Þeir vekja deilur, elska hið illa og heilagan anda eiga þeir ekki.
20 But do ye, beloved, building up yourselves on your most holy faith, praying in the Holy Spirit,
En þið, kæru vinir, uppbyggið sjálfa ykkur í hinni heilögu trú og lærið að biðja í krafti heilags anda.
21 keep yourselves in the love of God, looking for the mercy of our Lord Jesus Christ unto eternal life. (aiōnios )
Forðist allt sem hindrar líf ykkar í kærleika Guðs og bíðið með þolinmæði eilífa lífsins, sem Drottinn Jesús Kristur ætlar að gefa ykkur af miskunn sinni. (aiōnios )
22 And some rebuke when they contend; and others save, snatching them out of the fire; and on others have compassion
Verið mild við þá sem efagjarnir eru.
23 with fear, hating even the garment spotted by the flesh.
Bjargið öðrum eins og þið væruð að hrífa þá úr eldi. Hjálpið enn öðrum til að finna Drottin, með því að sýna þeim vináttu, en gætið þess að þið dragist ekki sjálf með þeim út í syndina. Hatið syndir þeirra og forðist allt sem óhreint er.
24 But to him that is able to keep them from falling, and to present them faultless before the presence of his glory with exceeding joy,
Dýrð sé Guði, því að hann einn er Guð og hann frelsar okkur með hjálp Jesú Krists, Drottins okkar.
25 to the only God our Saviour, through Jesus Christ our Lord, is glory, majesty, dominion and power, before all time, and now, and for ever. Amen. (aiōn )
Honum tilheyrir dýrð, hátign, máttur og vald frá upphafi, í dag og um ókomna tíma. Hann er þess megnugur að varðveita ykkur frá hrösun og leiða ykkur fagnandi, lýtalaus og heilög inn í dýrð sína. Amen. Júdas. (aiōn )